Færsluflokkur: Bloggar
28.12.2008 | 13:46
"Brennslan" í ár
Ég var að fá bækling frá einni björgunarsveitinni inn um lúguna hjá mér og opnaði hann spennt til að sjá hvaða nýjungar væru í boði þetta árið. Ég held mikið uppá áramótin og í gegnum tíðina hefur fjöldskyldan keypt stóran fjölskyldupakka, nokkrar skotkökur, auka blys og smádót og 3-5 stórar rakettur. Þá má ekki gleyma knöllum og áramótahöttum og ýmsum öðrum smá skreytingum fyrir áramótapartýið.
Ég kíkti yfir verð í bæklingnum og lauslega áætlað sýnist mér að ef við ætlum að kaupa allt ofantalið verði það brennsla fyrir tæplega 105.000.- krónur. Það er heilmikið meira en við höfum verið að kaupa fyrir undanfarin ár. Ég læt mér því nægja þetta árið að haga mér samkvæmt aldri og sleppa ekki barninu í mér lausu, heldur ætla að njóta þess að horfa á flugelda sem aðrir sprengja upp.
Við komum jú til með að kaupa eitthvað smávegis og að sjálfsögðu verða skátarnir og/eða einhver björgunarsveitin fyrir valinu til að versla við. En eitthvað verður það lítið þetta árið.
Vonandi versla sem flestir af þeim sem kaupa flugelda fyrir gamlárskvöld við björgunarsveitirnar og skátana því þeir þurfa svo sannarlega á stuðningi okkar að halda.
![]() |
Flugeldasalan hafin |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.12.2008 | 01:03
Ótrúlegur seinagangur
Farbann frá því 13. apríl 2007. Dæmigerður seinagangur í rannsókn mála. Jú mikil ósköp víst er málið viðamikið og teygir anga sína víða. En ef þetta mál er búið að taka hátt í 2 ár, hversu langur tími fer þá í öll málin sem hafa komið uppá yfirborðið síðustu mánuði, og þau sem eiga eftir að gera það á næstunni? Erum við að tala um margra ára ferli þannig að málin verða fyrnd þegar loksins kemst niðurstaða? (þe ef þetta hefur "bara" verið siðlaust en löglegt).
Er ekki tími til kominn að við fáum smá hjálp erlendis frá varðandi innri rannsókn bankanna. Varla getur það tafið fyrir, ótrúlegt annað en að það flýti fyrir.
![]() |
Farbann framlengt í 11. sinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
28.12.2008 | 00:04
Millifærsluslóðir sem kólna?
Jæja, ætli slóðin sé ekki orðin "köld" eftir allan þennan tíma, en gott væri að það kæmi í ljós hverjir þessir vildarvinir eru. Það ætti nú að vera hægt að sjá einhverja eigendur bankareikninganna hér á landi nema bara um millifærslu milli banka sé að ræða. Það ætti að vera skýring á millifærslunni skráð í bókhaldið hjá þeim. Ugglaust fær efnahagsbrotadeild lögreglunnar enga vitneskju þrátt fyrir að eðlilegt er þegar um rannsókn á einstaka færslum sé að ræða að þeir geti rakið þær. Sérstaklega ef líkur eru á misferli. Þá ætti bankaleynd ekki að viðgangast.
Seinagangur í málum hefur hamlað dómskerfinu hér lengi. Til dæmis seinagangur varðandi ákæru í samráðsmáli olíufélaganna. Verður sami seinagangur í þessu og þá hvers vegna?
Fróðlegt verður að sjá hvort kæra berst vegna málanna í London á réttum tíma....
![]() |
Rannsaka millifærslur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.12.2008 | 23:02
Hvar eru þeir sem vilja kosningar?
Ef allir þeir sem vilja kosningar myndu mæta næst á Austurvöll til að mótmæla friðsamlega hvað ætli margir myndu mæta? Þar sem farið er að mótmæla um helgar ættu fleiri að sjá sér fært að mæta. Það verður ekki tekið mark á þessu fyrr en allir sem vilja kosningar mæta til að mótmæla. Ef við viljum kosningar þá eigum við ekki að láta nokkur hundruð annarra um það heldur á fólk að mæta þarna. Mér finnst nú trúlegra að það séu fleiri en nokkuð hundurð Íslendinga sem vilja kosningar. Stjórnmálamenn hafa ekki verið að taka mark á þessum mótmælum og Ingibjörg Sólrún sagði sína skoðun á fundi í Háskólabíó fyrir ekki svo löngu. Þeir vilja ekki trúa að þarna sé um marga að ræða og sú túlkun verður þangað til nægjanlegt fjölmenni næst í þessi mótmæli.
![]() |
Nokkur hundruð á Austurvelli |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
27.12.2008 | 00:47
Þetta er mikið rétt !
Ég var að lesa grein Styrmis Gunnarssonar og held að allir ættu að kíkja á hana. Ef þið hugsið til baka hvað hefur verið talað um Evrópusambandið og hvernig sú umræða hefur breyst í kjölfar atburða síðast liðinna mánaða er þetta bara dálítið fyndið ef þið pælið í því.
Verðbólga innan viðkomandi ríkis þarf að vera í lágmarki í tilskilin ár áður en það getur sótt um aðild í Evrópusambandinu. Burtséð frá því hvort viðkomandi þjóð telst "rík" eða "fátæk". Við vitum öll um atkvæðarétt ríkja innan sambandsins og okkar atkvæði ... EKKERT sem marktækt er. Skilmálar: við höfum ekkert um að velja, annað hvort tökum við þeim skilmálum sem eru eða við erum utan sambandsins.
Í grein Styrmis segir: Utanríkispólitík snýst um hagsmunagæzlu, ekki sýndarmennsku og allá síst hroka. Síðan spyr hann: Hverjir eru hagsmunir okkar Íslendinga í utanríkismálum?
Svör hans eru skýr í 5 liðum. Endilega lesið grein hans, hún er ansi góð.
Við höfum óábyrga stjórnmálamenn etjandi kappi við að reyna að halda sínu sæti í þinginu, segjandi óábyrga hluti bara til að öðlast fáein fleiri ár í "stólnum". Við þurfum sjálf á okkar auðlindum að halda, sérstaklega núna. Við viljum ekki að einhverjir aðrir ráði yfir hvað er gert hverju sinni og hverjir framkvæmi. Við getum komist í gegnum þetta ástand án þess að ganga í evrópusambandið. Vonandi skoðum við öll alla kosti og líka alla galla þess að ganga í sambandið. Við getum tekið upp aðra mynt ef á þarf að halda einhliða. Sjíð bara Svartfjallaland.
Hvers vegna eru Finnlandsforseti, stækkunarmálaráðherra Evrópusambandsins og fleiri að bíða eftir okkar umsókn og segjast samþykkja hana á árinu? ... Þar sem við .. bara samkv. verðbólgu erum ekki hæf til að sækja um aðild, hvers vegna þá? Viljum við gefa okkar auðlindir eftir? Ættum við ekki að skoða hvers vegna Norðmenn, með sína olíu og sinn fisk, ganga ekki í sambandið?
Við höfum nú þegar sjávarútveginn og aðrar náttúruauðlindir eins og jarðhita, ... kanski líka olíu, .. er það kanski ástæðan fyrir því að STÆKKUNARSTJÓRI sambandsins vill okkur inn þrátt fyrir að við stöndumst ekki skilyrði???? Hvernig væri að kynna alla skilmála fyrir okkur strax þannig að við getum tekið ábyrga afstöðu þegar þar að kemur? á kanski bara að "kýla þetta í gegn" til að afla skammvinnra vinsælda?
Þið þarna í ríkisstjórn, sjáið sóma ykkar í að kynna fyrir okkur almenningi kosti og galla, semsagt ALLT sem viðkemur aðild ÁÐUR en þið sækið um !
![]() |
Ísland áhrifalaus útkjálki? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 00:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
27.12.2008 | 00:18
Frábært !
![]() |
Enn eitt aflametið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
26.12.2008 | 23:46
Betra er seint en aldrei eða hvað?
Hissa er ég á hvers vegna núverandi bankastýra upplýsir ekki um þetta, éða tilheyrði þetta ekki undir hennar svið í gamla bankanum ? hmmm kanski misskilningur. Máski er þetta ekki OF seint, þannig að kanski má segja betra seint en aldrei. Eða var kanski bankastýra ráðin til einhvers sem við vissum ekki um?
Kanski fáum við aldrei að vita okkar fullvissu, en einhver forráðamaður gamla bankans, þó laun hennar séu lækkuð til samræmis við aðra í hennar stöðu, nýtur sko ekki trausts almennings.
![]() |
Leita ráðgjafar vegna Baugs |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
26.12.2008 | 14:09
Nógar upplýsingar sem þeir selja nú þegar.
Það er alveg nóg að bankarnir hafi upplýsingar um einstaklinga. Það þarf ekki fyrirtæki eins og Lánstraust til að hagnast á frekari upplýsingum um okkur. Hvort ég borga á gjalddaga eða eindaga kemur engum við, nema þá mér og viðkomandi lánastofnun. Ef ég borga ekki fyrr en of seint einn mánuð hvað kemur það öðrum við nema mér og viðkomandi stofnun? Yrði ég ekki að greiða dráttarvexti sem viðkomandi myndi hvort sem er hagnast á?
Lánstraust selur nú þegar upplýsingar um einstaklinga sem lenda í vanskilum og er óskiljanlegt að það hafi ekki verið bannað fyrir löngu.
![]() |
Lánstrausti hafnað í þriðja sinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
26.12.2008 | 12:27
Ísland á útsölu !
Við Íslendingar höfun verið í gegnum tíðina dugleg að ferðast til annarra landa, bæði vegna þess að við erum ævintýragjörn og eins því það hefur verið ódýrt. Við höfum því slegið saman sumar- eða vetrarfríi og innkaupaferðum. Nú eða bara farið oftar erlendis og farið í helgar- og innkaupaferð. Við höfum verið umtöluð í mörgum borgum sem þjóðin með innkaupabrjálæðið. Nú er þessu snúið við. Ísland hefur verið dýrt til þessa en nú fáum við fjölda fólks erlendis frá hingað. Og það í innkaupaferðir! Ótrúlegt hvernig þetta snýst við, en við getum verið ánægð með að fá gjaldeyri inn í landið. Og eins að hótel sem hafa verið hálfbókuð eða jafnvel minna séu að fá meiri viðskipti. Semsagt meira að gera í verslun, þjónustu og ferðamannaiðnaðinum. Við megum vera ánægð með að það er uppgangur einhvers staðar í þessu litla þjóðfélagi.
Okkur kann að finnast þetta hálf skrítið og spurning er hvort þetta sé góð landkynning. En er þetta nokkuð verri auglýsing en birtist frá Flugleiðum um árið um næturlífið í Reykjavík? Þá heyrðust margar raddir sem fordæmdu hvernig þjóðin væri auglýst. Við erum nú þegar úthrópuð alls staðar í heiminum sem gjaldþrota land og í einu landi erum við á hryðjuverkalista. Það hlýtur að vera gott mál að fólk þori að koma og eyða peningum hér.
![]() |
Ísland á hálfvirði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.12.2008 | 18:45
Ánægjulegt hversu vel gengur !
![]() |
Bolungarvíkurgöng orðin 1.480 metra löng |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)