Færsluflokkur: Bloggar

Hvernig fer aumingja konan að?

Blessuð konan, þetta verður erfitt fyrir hana að lifa af þessum launum, einungis 1.500.000.- en hún getur huggað sig við að bifreiðahlunnindin eru líklega í kringum 150-200.000.- á mánuði, þannig að það er aðeins skárra.  Hvort þetta sé heilmikil launalækkun frá því sem hún hafði í gamla Landsbankanum skal ég ekki segja.  En að því slepptu þá er ofvaxið mínum skilningi hvers vegna hún er ennþá við störf þarna.

 


mbl.is Forstjóri Landsbankans lækkar í launum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gleðileg jól öll sömul :)

Þorláksmessa sem margir kalla dag skötu og friðargöngu er langt kominn og það styttist í jólin.  Sjálf borða ég ekki skötu og mér er sagt að ég fari mikils á mis.  Það verður svo að vera því lyktin finnst mér hræðileg.  Því verður bara pizza í matinn hjá mér :)


Jólin verða rauð, hjá okkur sunnlendingum a.m.k. Hátíð barnanna og okkar allra rennur upp þrátt fyrir allt umrót síðustu mánuða, sem fjölskyldur og vinir safnast saman og njóta samverunnar. 
Jólalögin óma, greni ilmur í bland við matarilm, yndislegasti tími ársins finnst mér.  Hlakka til borða hangikötið hjá mömmu minni um jólin því það er það besta sem hægt er að fá. 


Ég vil óska öllum gleðilegrar hátíðar, hafið það sem allra best um jólin :)


Eftir að hafa samþykkt stórfelldan niðurskurð styrkir félags-og tryggingarmálaráðherra um "heilar" 5 milljónir

Það kom mörgum á óvart að Jóhanna skyldi samþykkja allan þennan niðurskurð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2009.  Nú kemur smá ölmusa frá henni, spurning hvort það sé til að friða samviskuna svona kortér fyrir jól ? 

Er það kanski stefna þessarar ríkisstjórnar að skerða fyrst framlag til þeirra efnaminni og láta þá þurfa að ganga á milli hjálparstofnana til að komast af?  Er þeim slétt sama um andlega líðan fólks?

Eftir þessar síðustu aðgerðir ríkisstjórnarinnar verður enn meiri þörf á styrkjum fyrir fátæka hér á landi, því þó að allflestir forráðamenn þjóðarinnar viðurkenni ekki að fátækt hafi verið hér þá er það ekki rétt.  Fátækt þykir ljótt orð og það er mikið sussað á fólk sem segir það hreint út.  Því miður hefur fátækt aukist nú þegar og fleiri eru að lenda í gildru fátæktar hér á landi.

Þjóðin verður að sýna samhug í verki allt árið.  Verum duglegri að fylgjast með að fólk í kringum okkur hafi nóg að býta og brenna, ekki einungis fyrir jólin heldur allt árið !

 


mbl.is Ríkið styrkir innlent hjálparstarf
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sjálfsagt mál

Það eina rétta er að fulltrúar launþega sitji í stjórn lífeyrissjóða.  Það erum við launþegar sem eigum hagsmuna að gæta þarna.  Fyrirtækin stóru hafa verið dugleg við að láta lífeyrissjóðina taka þátt í atvinnulífinu með hlutabréfakaupum.  Við sjáum góð dæmi þess með td Baugi gamla og bönkunum.  Það ætti að vera sjóðsfélaga sjálfra að ráða því hvar fjárfest er, og myndi reynast betra fyrir fulltrúa þeirra að fá óhlutdrægar upplýsingar frá óháðum ótengdum aðilum.

Eitt sem verður að koma í veg fyrir einnig, er að sömu menn og sitja í stjórn lífeyris- og verkalýðsfélaga sitji í stjórn fyrirtækja sem þeir fjárfesta í.   Við viljum ekki fleiri Gunnari Páli, aldrei aftur.  Hjá mörgum hef ég heyrt að komið sé nýtt skammaryrði.  Það er: Þessi er nú algjör Gunnar Páll.  En það er notað yfir þá sem valta yfir aðra.  Sel þetta ekki dýrara en ég keypti það ....

 

 


mbl.is Vilja atvinnurekendur úr stjórnum lífeyrissjóða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Var þá ekki tekin ákvörðun um að fækka starfsfólki?

Ítarleg grein frá ríkislögreglustjóra.  En fréttir sem hafa verið um stórfellda fækkun starfsmanna, eru þær þá rangar? Hann talar fjálglega um að nú séu jafnmargir í vinnu og voru árið 2004 og að lögfræðingum hafi fjölgað um 5.  Hvað voru margir starfsmenn í byrjun árs 2008 og hefði ekki þurft að fjölga þeim?   Þarf ekki að rannsaka fleiri aðila en áður? 

Varla skrökva fjölmiðlar um fækkun starfa þarna, eða hvað?

 


mbl.is Sterk staða efnahagsbrotadeildar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ja hérna

Jæja, félagar í VR hafa eingöngu við sjálfa sig að sakast fyrir að bjóða ekki fram á móti honum.  

Gunnar Páll verður sjálfkjörinn formaður og getur því haldið áfram sínum "störfum" eins og hann hefur gert hingað til.  Til hamingju Gunnar, jólaveisla þín sem greidd var af félagsmönnum VR hefur borið árangur. 

Hvernig er það, borgum við þér ennþá sömu laun, hafa þau nokkuð lækkað?

 


mbl.is Gunnar Páll einn í framboði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þá vitum við það.

Ekki einn einasti þingmaður greiddi atkvæði gegn fjárlögum fyrir árið 2009 í gær.  Þá vitum við það. Stjórnarandstaðan gaspraði bara, ekkert að marka hvað þeir segja.  Á sama tíma stjórnarþingmenn samþykktu þá voru 8 manns fjarverandi og 2 í leyfi.  Þótti þessum 10 manns ekki fjárlögin nógu mikilvægt mál til þess að mæta?´Hvað með alla varaþingmenn, eru þeir bara uppá punt þessa dagana? 

Þögn er sama og samþykki.  Þögn í svona mikilvægum málum er ótrúleg.  Ekki er nægjanlegt að gaspra á þingi og mótmæla ef sami aðili gerir ekkert í málunum.  Neytir ekki einu sinni atkvæðaréttar síns.   Auðvitað lá þeim á að komast í mánaðar jólafrí en fjárlögin hefðu verið samþykkt og þeir komist í fríið samt sem áður.  Eins þeir sem höfðu ekki fyrir að mæta eða hreinlega fóru í leyfi þeir eru jafn ábyrgir líka. 

Ugglaust má til sanns vegar færa að niðurskurðar sé þörf.  En að greiða ekki atkvæði gegn svona miklum niðurskurði í heilbrigðismálum þjóðarinnar finnst mér skömm.  Hvernig farið er með þá sem  minna mega sín er til skammar. 

Jólagjöf þingheims til þjóðarinnar er ömurleg.  Aldraðir, öryrkjar og atvinnulausir mega svelta og deyja síðan drottni sínum ef þeir veikjast því þeir hafa engan veginn efni á að leita sér lækninga.  Börnin sem eru framtíð þessa lands mega ekki einungis taka á sig þungar skuldbindingar heldur gerið þið þeim erfiðara fyrir.  Þessi málamynda lækkun ykkar launa var einungis táknræn.  Reynið að lifa af rétt rúmum 100.000 kr. á mánuði.  Og á sama tíma og þið samþykkið þessi fjárlög sjáið þið ykkur leik á borði með að koma í gegn nýju eftirlaunafrumvarpi sem er að mestu gert til að láta ykkur líta betur út í augum almennings.  Það mistókst. 

Takk fyrir kæri þingheimur að hugsa svona vel um þá sem hafa minna hér. 

Við komum til með að muna þessa stjórn sem kom þessu frumvarpi í gegn.  Við komum líka til með að muna stjórnarandstöðuna sem samþykkti þetta með að sitja hjá.  Við komum líka til með að muna þá sem höfðu ekki fyrir að mæta.

Líklega er þetta,líkt og stýrivextirnir, vegna IMF en ef svo er hvers vegna ekki að birta skilmála lánsins ?   

Það er ekki um marga aðra flokka að ræða til að kjósa, en ég held að hljóti að vera að Íslandshreyfingin komi mjög sterkt út í næstu kosningum. 


Fréttamiðill fyrir ríkisstjórnina?

Geir segir engra breytinga að vænta um breytingu á ráðherraskipan.  Þann 14.desember sl. var sagt frá því í mbl. og haft eftir RÚV, að um yrði að ræða uppstokkun í ríkisstjórn og líklegt að skipt yrði í stjórn Seðlabanka Íslands og Fjármálaeftirlitinu.  Haft eftir áreiðanlegum heimildum segir RÚV.

Var þetta liður í að blekkja okkur eina ferðina enn? Var þessi frétt búin til fyrir almenning til að þagga niður í honum svo þing gæti fengið mánaðarfrí  ... og það á fullum launum að sjálfsögðu ?  Umtalið um Reyni ritstjóra DV var til komið því hann setti EKKI frétt í blaðið.  En er þessi frétt þá tilbúningur? Traustar heimildir ... já einmitt !

Lugu þessir traustu heimildarmenn að fréttamönnum RÚV eða bjuggu þeir til frétt?   Ég bara spyr .....


mbl.is Geir: Engar ráðherrabreytingar fyrirhugaðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Smá ljóstýratýra í öllum þessum niðurskurði

Sem betur fer eru alltaf góðar fréttir inná milli, einnig í dag í þessum niðurskurði ríkisstjórnar og krepputali.  Þá kemur ljós punktur eins og þessi.  Góðar fregnir fyrir nemendur framhaldsnámi í ljósmóður- og hjúkrunarfræðum.


mbl.is Ljósmæður og hjúkrunarfræðingar styrktir til framhaldsnáms
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta flaug að sjálfsögðu í gegn

Ég hefði nú gjarnan vilja sjá hverjir greiddu atkvæði með tillögunni, ekkert komið um það ennþá.  Svo er bara að bíða og sjá hvort forseti samþykki allan niðurskurð til aldraðra, öryrkja og atvinnulausra.

Nú á þessum líka tímum fara þingmenn í mánaðarfrí og næsti þingfundur er 20.janúar 2009 !

Ótrúleg vinnubrögð !


mbl.is 2009: Dýpsta ár kreppunnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband