Færsluflokkur: Bloggar
30.12.2008 | 01:18
Eins gott að vera með réttan tíma !
Ætli við verðum þó nokkuð vör við þessa einu sekúndu?
![]() |
Áramótunum seinkar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.12.2008 | 01:11
Ný fyrirmynd?
![]() |
Vísað úr landi vegna búðarhnupls |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.12.2008 | 01:04
hmmmmmmm
Hefði þetta kanski verið eitthvað sem þessir útrásarmenn hefðu betur skoðað?
![]() |
Flytja út bændur til Afríku |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.12.2008 | 01:02
Hver ætli sé munurinn?
![]() |
Hætt við lögsókn gegn Actavis |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.12.2008 | 00:20
Raforka á útsölu?
Hvað ætli svo Norðurál borgi fyrir raforkuna ? Nei suss suss suss það má ekki segja frá því. Ætli hátækni iðnaði hafi varið boðin orka á sama verði og álfyrirtækjum? eða jafnvel eitthvað svipuðu?
Almenningi er að sjálfsögðu ekki treyst fyrir slíkum leyndarmálum, ekki frekar en því sem hefur verið að gerast í fjármálum þjóðarinnar undanfarið. Við gætum jú orðið hissa og jafnvel reið yfir verðinu sem þessi fyrirtæki fá. Stjórnvöld virðast halda að fólk = fífl. Að minnsta finnst manni komið þannig fram við okkur. Víst er ágætt að þarna sé á leiðinni verksmiðja sem er atvinnuskapandi.
En hvernig er það, þegar farið verður að virkja meira, verður þá eitthvað hugsað um þá Íslendinga sem eru þá atvinnulausir og aðra aðflutta sem hafa misst vinnuna? Eða verður fengið eitthvað fyrirtæki sem flytur inn að mestu með sér vinnukraft?
![]() |
Sala á orku hefjist 2011 |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.12.2008 | 23:18
ææ aumingja litlu bankamennirnir, alltaf verið að níðast á þeim
Að sjálfsögðu hljóta þeir að halda fram sakleysi sínu í þessu máli. Kanski er þetta allt saman löglegt. En málið er EF þessar millifærslur eru löglegar eru þær þá ekki í öllu falli siðlausar?
Þeir segjast fagna rannsókn á þessu, en hvers vegna eru þeir mótfallnir skoðun á erlendu bönkunum? væri þetta ekki tilvalið tækifæri fyrir þá að skrifa undir heimild þess efnis að rannsaka megi allar færslur hjá þeim? Það er það sem saklausir menn myndu gera!
hmmmmmm... en heyrðu, eru þetta ekki sömu menn og fengu stóra bónusa sem reyndust vera útaf ágóða á pappírum?
Tímasetningar hljóta að skipta miklu máli líka ef um eina af þessu löglega en siðlausa er að ræða.
Reyndar á þetta allt eftir að koma í ljós þeas ef pappírstætararnir eru ekki fullir og tölvufærslur týndar.
![]() |
Engar ólögmætar færslur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.12.2008 | 15:29
Embætti sem klikkaði !
![]() |
Gátu ekki tapað á samningunum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.12.2008 | 10:49
Greyið Jón Ásgeir
Spurningin er hvort ekki sé hægt að segja að ríkisstjórn framsóknar og sjálfstæðisflokksins setji þarna línurnar í hruninu sem varð með kvótakerfinu sem leiddi af sér kvótakóngana. Öll einkavæðingin sem kom á eftir olli því að fleiri kóngar urðu til með sín ofurlaun og bónusa, Risa bónusar greiddir út fyrir hagnað sem var að mestu á pappírum að því er virðist.
Bankarnir kappkostuðu að lána peninga til vildarvina, og eftir því sem lánin urðu hærri því meiri veltu var krafist. Afleiðingin, fleiri fyrirtækjakaup og meiri útrás, því veltan hérlendis var engan vegin nægjanleg.
Atvinnurekendur heimtuðu að lífeyrissjóðir almennings fjárfestu í fyrirtækjunum og stjórn lífeyrissjóðanna samþykkti það og bera því sinn hluta ábyrgðarinnar.
Fjármálaeftirlitið, sem á að hafa eftirlit með bönkunum, sá ekkert athugavert við þetta eða amk. gerði ekkert í málunum og má því telja þá bera mjög stóran hluta ábyrgðarinnar, jafnvel þann stærsta. Jafnvel eftir að allt hrynur gera þeir ekkert þegar millifærslur fyrir 100 milljarða eru sendar úr landi til "vildarvina".
Allir þessir kappar sem högnuðust ótæpilega á kvótakerfinu, einkavæðingu banka og ríkisfyrirtækja annarra og notuð það fé til að fara í útrás bera sinn part af ábyrgðinni.
Jón Ásgeir er einn af þeim sem ber ábyrgð en ekki sá eini. Hann verður að taka því að við séum ekki sátt við hann.
Ríkisstjórnin núverandi og fyrrverandi ber ábyrgð á þessu,
Einkareknu bankarnir svo og Seðlabankinn bera ábyrgð á þessu.
En mesta ábyrgð hlýtur Fjármálaeftirlitið að bera.
![]() |
Jón Ásgeir tekur dóma nærri sér |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
28.12.2008 | 23:12
Endilega að fara alla leið !
Stundum hef ég á tilfinningunni að þegar fólk er að velta upp hugmyndum taki einhver sig til og leki í fjölmiðla þeim hugmyndum sem það annað hvort vill að verði ofaná eða því finnst sniðugar. Trúi því varla að þarna sé um alvöru hugmynd að ræða.
En hvers vegna ekki að ganga enn lengra? Það er jú voða fallegt að sjá litla bamba, héra og kanínur stökkva um í iðgrænu grasi og trjám. Það væri tilvalið að planta þarna sígrænum gervitrjám, gervigrasvelli, að sjálfsögðu allt upphitað í boði Hitaveitu Suðurnesja. Enn fremur, því það er oft rok, rigning eða sjókoma væri hægt að setja risa gler eða plasthvelfingu yfir. Þá værum við búin að fá atvinnu fyrir fjölda manns. Innflutt dýr gætum við fengið ódýrt (því allir vorkenna jú okkur að vera gjaldþrota). Endilega þurfum við síðan að muna eftir að skella upp nokkrum tjörnum fyrir skjaldbökur og gullfiska svo og að fá páfagauka af öllum gerðum og stærðum því það fengjust svo fallegir litir þarna inn með því. Þá gætum við skellt inn nokkrum íslenskum dýrum svona með svo sem refum. Ekki vitlaust eða hvað?
Svona að öllu gamni slepptu, var þessi hugmynd um hreindýrin ekki sett fram í djóki?
![]() |
Vara við hugmyndum um hreindýr á Reykjanesi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
28.12.2008 | 16:46
Kemst þetta til skila?
Gott að ráðherra sér að þetta er rangt. Bandaríkjastjórn ætti að sjá að sér og hætta að styðja Ísraelsmenn í eitt skipti fyrir öll. Helförin er eitt það versta sem gerst hefur í vestrænum heimi en það er ekki hægt að afsaka mannvonsku Ísraelsmanna með henni endalaust.
Hvernig er það, heldur ráðherra að eitthvað mark sé tekið á svona yfirlýsingu eða mótmælum? Ekki tekur hún sjálf mark á yfirlýsingum og mótmælum sem beinast að henni eða hvað?
En gott hjá þér Ingibjörg, en þú stóðst nú ekki við af taka okkur af lista herskárra vina bandaríkjamanna. Þrátt fyrir að við séum á honum enn erum við stimpluð sem hryðjuverkaþjóð í Bretlandi og þeir eru á sama lista. Kanski ætti að skoða betur undirskriftir ef annað þvílíkt kemur upp hjá USA og UK aftur.
![]() |
Óverjandi aðgerðir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)