Færsluflokkur: Bloggar
18.1.2009 | 19:01
Verksmiðja?
Þetta hlýtur að vera ansi stór tunna ef lokað hefur verið verksmiðju! En að sjálfsögðu hljómar þetta betur í tilkynningu lögreglunnar en ella.
Lýsingin hljómar nú eins og þetta hafi verið heimilisiðnaður. Við hverju bjuggust stjórnvöld eftir allar þessar hækkanir á áfengi? Þessar hækkanir sem hafa orðið síðustu mánuði auka magn á heimabruggi og smygli til muna.
![]() |
Lokuðu bruggverksmiðju |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
18.1.2009 | 11:14
Aftur til fortíðar?
Hér fyrir þó nokkuð mörgum árum var töluvert gert af því að keyra grænmeti á haugana, sérstaklega man ég eftir fréttum um tómata. Engar eða litlar niðurgreiðslur fengust og þeir voru það dýrir að fólk hafði ekki efni á að kaupa mikið af þeim. Það þótti betri pólitík hjá bændum að henda þeim á haugana en að lækka verð.
Að vísu er ekki um matvæli að ræða hér en kanski finnst bændum enn þessi tegund pólitíkur góð þeas að henda á haugana. Væri ekki ráð að reyna frekar að semja um við sveitarfélög að kaupa umfram plönturnar á heldur lægra verði ? Þar gæti verið komin vinna fyrir einhverja þó ekki væri nema smá tíma.
Nú ef ekki er vilji fyrir því þá er ég viss um að margir myndu vilja losa bændur við þann kostnað sem af hlýst að keyra plönturnar á haugana. Náttúruverndarsamtök ættu td að sjá sér hag í því og fá sjálfboðaliða til að hjálpa til við gróðursetningu á þeim, ég býð mig hérmeð fram. Þá dettur mér í hug að Pokasjóður gæti keypt einhverjar trjáplöntur og fengið sjálfboðaliða til gróðursetningar.
Eins eru margir einstaklingar sem myndu vilja fá trjáplönturnar til ræktunar.
Það er til ódýrari leið fyrir ykkur bændur að losna við trjáplönturnar en að keyra þær á haugana.
![]() |
Milljón trjáplöntur á haugana |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
17.1.2009 | 20:14
Ja hérna Guðni
Hrunið eingöngu á vakt Sjálfstæðisflokksins, ertu ekki að djóka? Samfylkingin var með þeim á vakt síðustu mánuðina. En það sem meira er Framsóknarflokkurinn með Sjálfstæðisflokknum á mestallan "heiðurinn" af þessu hruni.
Eða er það bara ímyndun að Framsóknarflokkurinn hafi verið með Sjálfstæðisflokknum í ríkisstjórn á síðustu áratugum? Bara þeir tveir flokkar?
Þessi blekking lýsir því best að ekkert hefur breyst innan þessa flokks að hann skuli heiðra mann sem á stóran hluta í þessu hruni.
Guðni er annað dæmi um "EKKI BENDA Á MIG" einkennið sem ég minnist á í dag.
![]() |
Guðni Ágústsson heiðraður |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
17.1.2009 | 19:18
Nógu mikil skömm og siðleysi
er að hafa tekið við þessu starfi í byrjun að mínu mati. Síðan að segja ekki af sér þegar upp kemst um hún hafi aldrei greitt fyrir hlutabréfakaupin og þau því gengið til baka eftir gjaldþrot bankans, að hafa ekki tekið þá ákvörðun nú þegarað hætta sem bankastýra. En að sækja um aftur væri alveg ótrúleg afstaða. Er ekki hún svo og bankastjórn Glitnis búin að gefa okkur nógu langt nef með að ráða hana til skamms tíma ?
Það væri svo sem eftir öllu að manneskja sem hirðir ekki um að athuga hreyfingar og innistæður á bankareikningi fyrirtækis síns ... eða var það ekki hennar "afsökun" fyrir að borga ekki... sé endurráðin bankastýra. Þvílík hneisa sem það yrði. Og hvílík vanvirðing við þann hluta íslensku þjóðarinnar sem á innistæður í bankanum.
Hvernig á manneskja sem er vanhæf í smá fyrirtækjarekstri að vera hæf til að stýra heilum banka ?
Nú þekki ég ekki til hennar fyrirtækis, en samkvæmt lýsingum var það hennar að sjá um greiðslur og fjármál, var þetta kanski bara svona fyrirtæki sem var stofnað utan um hlutabréfakaupin? Svona fyrirtæki sem mikið er verið að setja út á í dag ?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.1.2009 | 17:49
Bíddu nú við Geir
Þessi orð þín varðandi "ríkiskerfið" minna mjög á fyrstu ár tölvuvæðingunnar. Þá sagði fólkið sem gerði mistökin, þetta er helvítis tölvukerfinu að kenna, en viðurkenndi ekki að það væri fólkið sem mataði tölvurnar sem gerði mistökin.
Ert þú Geir og hefur þú ekki verið einn af þessu ríkiskerfi? Hvernig væri að axla ábyrgð á sínum gjörðum eða finnst þér þú yfir það hafinn? Kerfiskallar og konur kenna bákninu um í staðinn fyrir að kenna fólkinu sem þar vinnur um.
Það sem sést í þessari grein er "týpiskt EKKI BENDA Á MIG" einkenni. Einkenni sem sérstaklega finnst hjá óábyrgum stjórnmálamönnum þessa lands, því miður.
![]() |
Geir: Árið verður mjög erfitt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.1.2009 | 15:45
Orð Ingibjargar Sólrúnar löngu orðin fleyg:
"þessi hópur endurspeglar ekki vilja þjóðarinnar". Þetta virðist einnig skoðun annarra ráðherra í þessari ríkisstjórn. Hve langt þangað til að skilaboðin komast í gegn til þeirra?
Hvenær ætlar seðlabankastjórn og stjóri að hafa manndóm í að segja af sér?
Hvenær ætlar fjármálaeftirlitið að sýna af sér þann manndóm af segja af sér?
![]() |
Fjöldi manns á Austurvelli |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
17.1.2009 | 15:28
Vandvirkni tollayfirvalda... eða hroðvirkni?
Það hefur verið tilhneiging hjá ríkinu að spara gagnvart búnaði tollyfirvalda. Þegar tollarar "finna" smyglvarning, er það ekki lang oftast vegna þess að þeir fá ábendingar um smyglkið fyrirfram? En hvernig er það, er ekki farið að nota þennan nýja gegnumlýsingarbíl hjá tollinum?
Í gegnum tíðina hefur miklu verið smyglað með vörum í gámum til fyrirtækja eða svo segir almannarómur. Hefur þessi orðrómur borist til allra nema tollvarða?
![]() |
Stórfellt smygl með vörum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.1.2009 | 11:31
Og stærstu útrásarmennirnir hér
eru þeir ekki allir þarna? Bæði skattaparadís og bankaleynd örugglega. Hvers vegna annars hefðu Jón Ásgeir og co og örugglega fullt af öðrum viðskiptajöfrum stofnað fyrirtæki þarna?
Mörg af stærstu samtökunum eru sagðar með í Karabíska hafinu sökum skattaparadísarinnar og því hversu peningaþvottur reynist auðveldur þar. Ma á víst rússneska mafían nokkur. Ætli Björgúlfur sé þá ekki einn af þeim sem eiga fyrirtæki þarna líka?
Fróðlegt væri að fá lista yfir íslensk nöfn sem tengjast fyrirtækjum í þessum skattaskjólum.
![]() |
Nýta sér skattaskjól |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
16.1.2009 | 23:20
Ekki hissa á því að Ísland væri á lista
yfir þær þjóðir sem hann ætlaði að heimsækja. Utanríkisráðherra hefur séð til þess að við erum ennþá á lista hinna staðföstu þjóða. Þar sem við styðjum stríðsrekstur Bandaríkjamanna í Írak þá finnst þeim kanski að við eigum að styðja þá.
Gott að við afþökkum opinbera heimsókn frá þeim en hvernig er það, eitt af kosningaloforðum Samfylkingarinnar var að taka okkur af lista hinna staðföstu þjóða. Það á ekkert að efna það loforð eða hvað?
Ég held að flokkarnir á Íslandi haldi að kosningaloforð séu gefin til að svíkja þau....
![]() |
Heimsókn Ísraela til Íslands afþökkuð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.1.2009 | 22:58
Sjálfstæðisflokkurinn,Framsókn, Samfylkingin,
allir eru þeir sammála um að taka upp viðræður um aðild að Evrópusambandinu, þrátt fyrir viðvaranir frá mönnum, sem nú er vitað að vöruðu ríkisstjórnina sem þá sat, þe Sjálfstæðisflokks og Framsólknarflokks fyrir hruninu 1990 svo og núverandi stjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar töluvert fyrir hrunið. Þá eru margir erlendir hagfræðingar búnir að spá Evrunni slæmu gengi jafnvel hruni á árunum 2011 - 2013.
Væri það ekki týpískt fyrir Íslendinga að ganga í Esb svona rétt fyrir hrunið?
Hvað með fiskveiðistefnu og auðlindastefnu Esb ? Er fólk bara að hugsa um annars vegar tollalækkanir og hins vegar þessa styrki sem voru þegar allt var í lagi innan Esb ? Hvað eftir efnahagslegt hrun þjóða innan Esb verður þá svo margt í boði og þá sérstaklega fyrir þjóð sem verður með 0,82% atkvæðarétt?
Hvernig verður með spillinguna sem hefur viðgengist, þessir 3 flokkar eru nú í kosningaham hver á eftir öðrum og allir með svipuð slagorð og ætlar fólk að trúa þeim eina ferðina enn? Vonandi ekki. Ef sama fólk verður þarna verður trúlega nákvæmlega það sama uppá teningnum og hefur verið í þróun síðustu áratugi þessara 3ja flokka.
![]() |
Skúli Helgason: Krafa um breytingar á rétt á sér |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)