Færsluflokkur: Bloggar
19.1.2009 | 15:19
Ja hérna,
![]() |
Finnur ráðinn til ársloka |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.1.2009 | 13:13
Skrítin umræða á þessum tímum
Í viðtali á Bylgjunni í morgun sagði Þórður Friðjónsson hjá Kauphöllinni að það þyrfti að fara að ræða um hvernig staðið yrði að sölu ríkisfyrirtækjanna. Hann á örugglega við öll ríkisfyrirtæki og þar með sölu allra bankanna AFTUR! Þessi umræða er svo ótímabær að það vakna upp spurningar um hvort þetta sé taktik til að beina athyglinni frá millifærslum bankanna undir það síðasta.
Hvernig er það, er Þórður ekki tengdur einum fjárfestingarbankanum? Kanski sér hann leik á borði þarna til að það félag eignist ódýrt banka ?
Það þarf FYRST af öllu að setja lög sem koma í veg fyrir að hægt sé að koma í veg fyrir að siðleysi fárra komi öllum peningum í þeirra eigu og öllum skuldum í hendurnar á almenningi. Síðan er hægt að skoða hvaða stefnu er best að taka.
Reyndar það sem þarf fyrst er ný ríkisstjórn, nýtt Fjármálaeftirlit, nýja stjórn Seðlabanka og nýjan Seðlabankastjóra. Síðan má athuga með annað.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
19.1.2009 | 12:30
Að sjálfsögður ekkert óeðlilegt !
Þessir menn ættu að fagna því að allt sé rannsakað því það myndu allir saklausir menn gera. En hvers vegna finnst þeim þá að sér vegið? ...hmm skrítið.
![]() |
Ekkert óeðlilegt við viðskiptin við Al-Thani |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.1.2009 | 12:11
Og hvað þýðir það mikla hækkun hér?
Undanfarið hefur olíutunnan lækkað umfram hækkun dollars gagnvart krónunni. Nú er tunnan í 36 dollurum en í sumar þegar hún var í 147 dollurum var gefið út af forstjóra N1 að verð myndi alfarið haldast í hendur við verð á olíunni. Þegar verðið hækkar á það að fylgja olíuverðinu en þegar það lækkar fylgir það bara kanski geðþótta?
Einn af ráðherrum okkar lands var stjórnarformaður í viðkomandi olíufélagi en er nýhættur að starfa sem slíkur. Finnst honum þetta sjálfsagt?
Ef rétt er spáð og olíutunnan fer í 10 dollara innan ár, hvað kostar bensínlíterinn hér á landi þá? Miðað við að hækkað er þegar olíuverð hækkar og hækkað líka þegar olíverð lækkar ?
Meðan þeir sem stjórna verðinu stjórna líka landinu með óstjórn þá er ekki von á öðru en töluverðri hækkun.
![]() |
Olían í 10 dali? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.1.2009 | 11:14
Og trúlega enginn hissa
Ég yrði ekki hissa ef svona fréttir verði í hverri viku, jafnvel oft á næstu mánuðum. Eftir því sem heyrist hefur fólk aukið heimabrugg töluvert og léttvínsframleiðsla er einnig í algleymingi.
Flestir eru trúlega að þessu til eigin nota, en alltaf er eitthvað um sölu á landa. Merkilegt nokk, það er farið að selja heimabruggað léttvín á svörtum markaði líka!
Sjálfsbjargarviðleitni má kalla þetta, sem er ekkert skrítið því verðlagningin er náttúrulega fáránleg. Og ekki má gleyma því að áfengisneysla eykst á krepputímum, það kennir sagan okkur.
![]() |
Landaverksmiðju lokað |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.1.2009 | 10:24
Hve lengi á að bíða ?
Það þarf að skipta út ÖLLUM sem bera ábyrgð á þessu. Ríkisstjórninni, Seðlabankastjóra og Seðlabankastjórn svo og Fjármálaeftirlitinu. Ætlar ríkisstjórnin ekki að drífa þetta allt af strax áður en enn meiri tími líður? Hvenær ætla þeir að skilja að tíminn stendur ekki kyrr?
![]() |
Ábyrgð á efnahagshruninu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
19.1.2009 | 09:27
Undanskot ?
Ég er hrædd um að annars staðar í heiminum væri búið að setja þessa menn bak við lás og slá. Í Bandaríkjunum er búið að stinga nokkrum inn fyrir undanskot og "fyrirgreiðslu" fyrir hrunið. Það þarf að gera eitthvað í málum hér!
![]() |
Hundruð milljarða millifærðir á reikninga erlendra félaga |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.1.2009 | 09:07
Sundurliðun takk!
Ég er nokkuð viss um að megi spara þarna, í utanríkisþjónustunni svo og í styrkjum til stjórnmálaflokka. Ekki veitir af að spara meira þarna líka, það vantar sárlega fjármagn í heilbrigðisþjónustuna.
![]() |
Alþingi lækkar kostnað sinn um 215 milljónir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
18.1.2009 | 20:26
Hvernig er þetta hægt ?
Hvernig getur gjörsamlega vanhæf stofnun gefið út hæfnismat? Eru þetta ekki sömu menn og gáfu grænt ljós á útrásararvíkingana og gömlu bankana? Þessi vinnubrögð eru alveg ótrúleg. Ætla stjórnvöld áfram að láta þetta viðgangast?
Eitt er víst að þetta er mjög ótrúverðugt mat!
Trúlega láta stjórnvöld þetta viðgangast lengur. Þau mega ekki vera að því að hugsa um velferð þjóðarinnar. Eru þetta líka kanski einkavinir ráðherra eða annara ráðamanna stjórnarflokkana?
![]() |
Bankastjórar stóðust hæfismat FME |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
18.1.2009 | 19:47
Jaháhá einmitt það !
Geir er ótrúlegur. Að hann skuli voga sér að halda fram í viðtali við BBC sem birt er í dag að til athugunar sé að höfða málssókn gegn Bretum vegna hryðjuverkalaganna er ótrúlegt. Hvernig er það, var hann ekki búinn að segja bið okkur Íslendinga að það yrði ekki gert? Er tíminn til að hefja málssókn ekki útrunninn? Hvað bull er í gangi endalaust hjá honum?
Maður sem lætur svona hlýtur að vera vanhæfur stjórnandi. Enda segir hann í viðtali við Mbl í gær að ríkiskerfið hafi brugðist en EKKI hann. Hann sem er æðsti stjórnandi þessa kerfis. Hann er hreint ótrúlegur. En eins og máltækið segir "hæst glymut í tómri tunnu".
![]() |
Geir svarar Skotum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)