Færsluflokkur: Bloggar

Samanborið við álrisana,

hvað eru íslenski garðyrkjubændur að borga fyrir rafmagnið í dag? Að vísu eru þeir ekki stórir miðað við risana en viljum við enn hærra grænmetisverð? það þýðir hærra vöruverð, sem hækkar vísitöluna, sem hækka lánin, sem kemur almenningi nær gjaldþroti.
Almenningur er búinn að fá yfirdrifnar hækkanir, við getum svosem hætt að borða grænmeti og hollustu. Þá fjölgar þeim sem þurfa að leita læknis, meiri útgjöld í heilbrigðiskerfið þarf, sem ýðir hærri skatta, sem þýðir meiri peninga almennings sem á hann ekki því hann er farinn í að greiða niður skuldir óreiðumanna sem stunduðu útrás eða alla vega útflæði peninga erlendis í banka sem ekki gefa neinar upplýsingar um innistæður eða fjármagnsstreymi.
Spurning er núna hvernig nýr ráðherra og ný ríkisstjórn tekur á þessu ef hún hefur tíma til
mbl.is Aðför ríkisins að íslenskri garðyrkju
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Góður kostur ef um semst

Það væri góður kostur ef samstarf tækist um að Íslendingar tækju upp norsku krónuna. Bæði er hún stöðug og eins væri komið í veg fyrir að við yrðum gleypt með húð og hári af Evrópusambandinu ef við förum þangað nauðbeygð. Þá höfum við tíma til að skoða ALLA kosti og galla sem eru samfara inngöngu í Evrópusambandið. Það á nú eftir að koma í ljós hvort norsk stjórnvöld myndu samþykkja að við tækjum upp krónuna þeirra, en það myndi hjálpa okkur töluvert ef svo væri.
mbl.is Tilbúin í viðræður um samstarf
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lokaður inní fílabeinsturni ?

Hvar hefur Halldór Blöndal verið síðasta árið? Einhvers staðar þar sem ekki er hægt að nálgast fjölmiðla? Að minnsta kosti virðist hann ekki hafa lesið blöð, hlustað á útvarp eða sjónvarp. Kanski hefur hann bara verið lokaður inní fílabeinsturni einangraður með Davíði Oddssyni og co. Bankaráð og bankastjórn Seðlabankans hefur kosið að skella skollaeyrum við allri gagnrýni á störf bankans, efnislegri og óefnislegri, faglegri og ófaglegri. Stundum er betra að þegja, það ætti Halldór orðið að vita.
mbl.is Yfirlýsingar jaðra við einelti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Varla ætla þeir að þiggja biðlaun, svona kortér fyrir kosningar ?

Trúi því seint að menn sem eru á þingmannalaunum þurfi líka biðlaun ráðherra. Þeir hljóta að afsala sér þeim biðlaunum ef eitthvað er í þá spunnið. Í þessu árferði, hvernig væri að afsala sér þessum biðlaunum eða setja þau beint inn í heilbrigðismálin? Að vísu dropi í hafið þar, en margt lítið gerir eitt stórt.
Fráfarandi ríkisstjórn gerði stór mistök, ætla þeir sér 6 mánaða biðlaun fyrir mistökin? Það finnst mér lélegt siðferði.
Næstu kosningar innan 3ja mánaða, og er nokkuð viss um að fólk kýs ekki lengur fólk með slíkt siðferðismat.
mbl.is Verða á launum út febrúarmánuð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Auglýsi eftir þeim mönnum

sem fréttu eftir á að þeir hefðu sagt af sér í Fjármálaeftirlitinu ! Endilega gefið ykkur fram!
Geir, gæti ekkiheld ég að virðing fyrir landsmönnum og þeirra skoðunum hafi valdið afstöðu til skipulagsbreytinga á stjórnkerfinu ? Eða réttlætiskennd?
Þetta er kanski tilraun hjá þér til að réttlæta sjálfan þig og þinn flokk en ansi léleg tilraun að mínu mati.

mbl.is Geir: Stjórnuðust af hatri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ja hérna Geir !

og hvers vegna í ósköpunum sagðir þú okkur þjóðinni þetta ekki fyrr ? Trúlega var þetta allt bara vondur draumur þegar þjóðina dreymdi allar þínar tilkynningar um hræðilegt ástand. Okkur er enn að dreyma atvinnuleysið sem er margfalt það sem við höfum búið við síðustu áratugi. Okkur er enn að dreyma allan þennan niðurskurð í heilbrigðisgeiranum og hvernig farið er með örorkuþega og eldri borgara. Eins hafa fasteignir almennings ekki lækkað meðan skuldirnar hafa hækkað töluvert mikið og eru í sumum tilfellum komnar langt yfir verð eignar. Þá hefur engum dottið í hug að flýja land vegna þess að ekki er til peningur fyrir nauðþurftum, svo sem mat handa öllum fjölskyldumeðlimum.
Mikið hlýtur að verða mikill léttir fyrir þjóðina að vakna eftir þessa martröð. Því ekkert af þessu getur verið rétt miðað við að við erum efnahagslega á svipuðum stað og árið 2006.

Eða ertu þegar kominn í kosningaham fyrir Sjálfstæðisflokkinn og ætlast til að þjóðin gleymi allri óstjórn síðustu áratuga og að mestu leyti undir forystu ykkar Sjálfstæðismanna og Framsóknarflokks?
Er þarna að birtast ástæðan fyrir því að þú vildir ekki taka þátt í þjóðstjórn, svo Sjálfstæðisflokkur gæti kennt næstu ríkisstjórn um allt?


mbl.is Gera of mikið úr vandanum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Margt vitlausara til en þetta.

Alls óvitlaus hugmynd, því þá væri erfiðara fyrir Evrópusambandið að valta gjörsamlega yfir okkur. Ef við tækjum upp norska krónu í samráði við Noreg gætum við haldið sjálfstæði okkar, stjórnað okkar fiskveiðum og öðrum auðlindum.

mbl.is Hugnast norska krónan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ef allt er löglegt,

hvers vegna vill þá enginn tjá sig varðandi tilgang þessa fyrirkomulags í sambandi við kaupréttarsamninga Landsbankans?
mbl.is Rauði krossinn tengdist huldufélagi í Panama
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Og spillingin heldur áfram í Framsóknarflokknum

Björn Ingi Hrafnsson fékk meðan hann var aðstoðarmaður Halldórs Ásgrímssonar þáverandi forsætisráðherra 60 milljóna króna kúlulán árið 2005 hjá KB banka til að kaupa hlutabréf í bankanum. Hann seldi stuttu síðar og hafði litlar 20 milljónir uppúr krafsinu. (samkv.DV)

Birkir Jón Jónsson varaformaður Framsóknarflokksins er orðaður við fjárhættuspil sem er ólöglegt hér á landi. (samkv.DV)

Halldór Ásgrímsson kvótakóngur og fyrrv.forsætisráðherra vildi endilega fá fiskveiðkvóta í gegn á alþingi. Kvótakóngarnir eru búnir að braska með kvótann, hirða milljarða út úr þessu fyrirkomulagi og segja síðan útgerðina skulda svo mikið að þeir þurfi aðstoð ríkisins.

Hvað ætli mörg önnur dæmi eigi eftir að koma upp á yfirborðið á næstunni? 

 

 


Bíddu nú við

Og er ætlast til að trúað sé að þetta sé EKKI gert til að forðast upptöku vegna einhvers sem þeir hafi gert? Sem betur fer eru lög sem ógilda svona gjörðir þegar verið er að koma undan eigum. Nú er bara að sjá hvað varð til þess að þessir menn gerðu þetta, það hlýtur að vera stutt í að það komist upp.
mbl.is Fleiri bankamenn skráðu eignir á ættingja
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband