Færsluflokkur: Bloggar
19.12.2008 | 10:21
Nú koma í ljós heilindi stjórnmálamanna.
![]() |
Segja eftirlaunafrumvarp kattarþvott |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
19.12.2008 | 09:54
Næstum helmings aukning og kemur til með að aukast eftir áramót
Ég fékk sting í hjartað þegar ég las þessa frétt. Um 2300 fjölskyldur sem leita aðstoðar núna en við vitum að það eru margfalt fleiri sem þurfa á hjálp að halda en eru of stoltir til þess að leita aðstoðar. Það eru þungbær skref fyrir fólk að stíga þegar það leitar aðstoðar þessara þörfu stofnana. Munum eftir nágrönnum okkar, þar leynist inná milli fólk sem þarf aðstoð en er of stolt til að þiggja hana. Finnum leiðir til að hjálpa þeim án þess að þeir þurfi að láta af stoltinu. Og ekki bara núna fyrir jólin, því fólk þarf jú mat og hita allt árið.
Ríkisstjórnin mætti huga að þessum mannlega þætti áður en þeir afgreiða endanlega fjárlögin og amk. hætta við skerðingu til aldraðra og öryrkja og atvinnulausra.
![]() |
Sífellt fleiri leita aðstoðar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.12.2008 | 09:44
Eitthvað til að hækka verðtryggðu lánin.
Við skulum því bara halda áfram að borga með brosi á vör hærri afborganir, vera ánægð með að lánin okkar fari langt umfram húsnæðisverð því einhverjir þurfa jú að borga fyrir klúður íslenskra auðmanna !
![]() |
Vísitala byggingakostnaðar hækkar um 2,3% |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.12.2008 | 08:52
5 dagar til jóla :)
![]() |
Jólaverslunin færist heim |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.12.2008 | 23:35
Bara 6 dagar til jóla :)
Ég hef alltaf notið aðventunnar og verið í jólaskapi allan desember mánuð. Finnst yndislegt að koma heim, allt húsið uppljómað með jólaljósum en núna vantar ennþá dálítið uppá jólaskapið.
Ég ætla því um helgina að baka smákökur og klára að pakka inn jólagjöfum og gá hvort það það geri ekki gæfumuninn!
Þetta verður langt jólafrí og ég hlakka til að eyða því með fjölskyldunni og vinum. Þessir undanförnu mánuðir hafa svo sannarlega minnt mig og örugglega alla á, hversu rík við erum þegar við eigum góða að :)
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
18.12.2008 | 23:02
Jólagjafir ríkisstjórnarinnar
Okkur bárust nokkrar jólagjafir frá ríkisstjórninni:
1. Þið sem þurfið á heilbrigðisþjónustu að halda getið borgað eða bara dáið drottni ykkar. Nema að þið séuð í hópi auðmanna þá hafið þið efni á að borga.
2. Börn og unglingar og þið hin sem ætlið að mennta ykkur. Við ætlum að hverfa til gamla góða tímans þegar þeir einu sem höfðu ráð á að mennta börnin sín voru stóreignamenn.
3. Eldri borgarar og öryrkjar, þið hafið svo sannarlega ekkert að gera við allan þann háa lífeyri sem þið fáið. Setjist bara uppá ættingja eða Hjálpræðisherinn.
4. Aðrir borgarar, atvinnulausir eða vinnandi, við hækkum skattana ykkar til að borga skuldsetningu þjóðarinnar.
5. Þau bæjarfélög sem ekki hafa enn hækkað þjónustu sína munu gera það hið fyrsta, ykkur til mikillar ánægju.
6. Við, ásamt bönkum og lífeyrissjóðum, gleðjum ykkur með því að afnema ekki verðtryggingu lána.
7. Við reynum í lengstu lög að halda í okkar ástsælu vini og starfsmenn Fjármálaeftirlitsins, yfirmenn bankanna, þmt Seðlabankans svo og sendiráðsmenn um allan heim, svo við getum leyft ykkur náðarsamlegast að halda áfram að borga.
Með jólakveðju frá ríkisstjórninni í boði IMF og Seðlabankans
![]() |
120,5 milljónir í viðbót |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
18.12.2008 | 22:27
Kæra bankastjórn
Kæra bankastjórn Nýja Landsbankans,
ég er einn af ykkar viðskiptavinum og þar sem þið eruð nú að fella niður hluta af kröfum ykkar kom mér í hug eftirfarandi:
Þar sem stór hluti tekna minna og mannsins míns hefur farið í að greiða ykkur vexti og verðbætur af lánum síðast liðin 25 ár vil ég leyfa mér að fara fram á, þar sem ég sé fram á áframhaldandi erfiðleika við að borga af lánum að þið fellið niður hluta af skuldum mínum við bankann. Mér finnst það sanngjarnt í ljósi þess að við erum að fara að borga niður skuldir fyrir útrásarmenn og önnur dusilmenni, svo og nú síðast sjávarútvegsfyrirtækja. Að vísu erum við bara almúgafólk þannig eð ég veit að það minnkar líkurnar á því, en við sjáum fram á endalausa hækkun á afborgunum því hvernig sem við borgum af láninu okkar þá bara hækkar höfuðstóll þess.
Því bið ég ykkur kæra bankastjórn að sýna, ekki bara í orði heldu einnig á borði, að þið mismunið ekki viðskiptavinum ykkar.
Virðingarfyllst,
Sigurbjörg
![]() |
Kröfur verði felldar niður að hluta |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
18.12.2008 | 20:30
Og næsta skref er ....?
Einhver hefði haldið að nú væri nóg komið. Ef til vill er verið að gera þetta til að lægja öldurnar í þjóðfélaginu og Baugsmenn liggja vel við höggi. En það eru fleiri útrásarmenn en þeir. Hvernig væri að beina kröftum ykkar LÍKA gegn öðrum aðilum? Fáið erlenda áháða rannsóknaraðila til að fara yfir bankamálin áður en það verður of seint. Og ef einhverjum hefur dottið í hug að við myndum þagna ef Baugsmenn yrðu ákærðir eina ferðina enn þá eru það mistök.
Því þetta fær okkur ekki til að hætta að mótmæla öðru sem miður hefur farið í þjóðfélaginu.
Þetta fær ekki raddir okkar til að þagna um vanhæfa menn í Fjármálaeftirlitinu og nýju bönkunum.
Ekki heldur til þegja vegna hinna útrásarmannanna sem hjálpuðu til að fella bankana.
Þetta fær raddir okkar ekki til að þagna um vanhæfa Seðlabankastjórn og né Seðlabankastjóra.
Þetta fær ekki raddirnar til að þagna um vanhæft fólk í nýju ríkisbönkunum.
Þetta fær raddirnar okkar ekki til að þagna um vanhæfa ríkisstjórn.
![]() |
Ákært á ný í Baugsmálinu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.12.2008 | 12:28
Í guðanna bænum hlustaðu nú Björgvin!
Björgvin, þú hefur lítið fengið að vita undanfarið ár. Fengið litlar upplýsingar um bankamál ogendurskoðendur, tengsli etc. Einnig virðist Dabbi hafa sett þig út í kuldann, amk leið næstum ár milli þess að þið töluðuð saman.
Nú er komið fólk sem vill láta þig vita að það er sama fólk ennþá við stjórn nýju bankanna og var í þeim gömlu.
Þú hlýtur að fá fréttir af þessu núna og hvet ég þig því til að að heyra hvað fólkið hefur að segja og ráða strax nýtt fólk óspillt í bankana.
![]() |
Vilja stjórnendur bankanna burt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.12.2008 | 11:35
Hvaða skrípaleikur er þetta ?
Hvers konar hártoganir eru þetta? Er forstöðumaður útibús ekki undir sama hatti og bankastjórar? Er ekki nóg mál til komið að hætta þessum blekkingaleik?
Að minnsta kosti er mér stórlega misboðið sem viðskiptavini bankans.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)