Færsluflokkur: Bloggar

Bara utanríkisráðherra?

Fordæming frá utanríkisráðherra, en ekki allri ríkisstjórninni ?


mbl.is Fordæmir innrás á Gasa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vandræðalegt

Hvað ætlar ríkisstjórn Íslands að gera. ætlar hún að fordæma innrásina eða er hún í fýlu að því okkur gekk ekki betur í kosningu Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna?   Eða á hún erfitt um vik þar sem við erum ennþá á lista hinna staðföstu þjóða sem studdu innrásina í Írak ?

Vandræðalegt fyrir þjóð sem kynnir sig alls staðar sem friðelskandi þjóð án hers og segist stolt af því. 


mbl.is Framganga Ísraels fordæmd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ætli það sé mögulegt?

Ef ég verð eignalaus í kjölfar lækkunar á fasteignaverði og hækkunar lána, og bankinn tekur húsið af mér.  Get ég þá fengið bankinn til að samþykkja að ég geti eignast hluta í því aftur, svona EF það skyldi tvöfaldast í verði?

En kanski er þetta bara gert fyrir vildarvini......


mbl.is Wernerssonum líklega úthýst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ótrúlegur yfirgangur

Yfirgangur Ísraela er ótrúlegur.  Bandaríkjamenn hafa í gegnum tíðina stutt þá enda sami yfirgangur í þeim.  Þeim virðist nákvæmlega sama um hverjir verða fyrir sprengjum þeirra.  Börn eru sögð 75 látin í þessari frétt, 460 palestínumenn látnir, hver verður sú tala á morgun?  Þetta er hin mesta svívirða sem um getur lengi.  Það er ótrúlegt ef ekki vlandast fleiri inn í þessi hræðilegu átök.  Nágrannaþjóðirnar eiga trúlega erfitt með að horfa upp á fjöldamorð á saklausum borgurum og sérstaklega þegar um börn er að hræða. 

Afsökun Ísraelsmanna að þeir séu að lama hryðjuverkasamtök eru EKKI afsökun fyrir þeirra hryðjuverkum. 


mbl.is Landher Ísraels inn á Gaza
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er einhver hissa?

Fréttir undanfarna mánuði:

Bankar gjaldþrota - fyrirtæki gjaldþrota - einstaklingar gjaldþrota - Ísland gjaldþrota.

Heilbrigðiskerfið niðurskurður - menntakerfið niðurskurður - Allt annað niðurskurður.

Skattar hækkaðir - þjónusta hækkuð - vöruverð hækkuð - íslenska krónan hríðfellur.

Atvinnuleysi stóreykst - bætur lækka

Er einhver hissa á svartsýni?


mbl.is Íslendingar aldrei verið svartsýnni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvernig væri að segja frá hvernig staðan ER svona til tilbreytingar ?

Gengi evrunnar í dag er ikr.169,16 verði það ikr.170 verðum við í 15.sæti .  Og það er miðað við að spár um landsframleiðslu standist.  Væri ekki nær að hætta þessu bulli með að við séum dottin í 9.sæti miðað við spár ?  Miðað við spár erum við þegar dottin niður í 15.sætið.  EF gengi krónunnar lagast þá gætum við færst ofar.  Hvernig væri að segja hlutina eins og þeir eru en ekki eins og þeir geta orðið?

Að minnsta kosti get ég ekki skilið þessa frétt öðruvísi.


mbl.is Ísland áfram í efstu deild þjóða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað með málshöfðunina ??????????

Hvernig gengur með málshöfðunina sem þingmenn 5 flokka lögðu fram frumvarp um?  Hvað er verið að gera í þeim málum, eða var þetta svæft ?  Ef svo færi að við myndum vinna málið gæti það nú bjargað ýmsu. Til dæmis einhverjum afborgunum vegna þessa.  Nú ef ekki, þá er það samt þess virði að reyna málssókn.  Við förum að brenna út á tíma ekki satt? Ætla stjórnvöld bara að láta það gerast eins og marga aðra slæma hluti?


mbl.is Icesave-lánakjörin enn óljós
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað er í gangi eiginlega ?

Ég var að flakka á netinu, kíkti inn á Vísi og sá ma þessa frétt:

"Þá fékk lögreglan tilkynningu um sprengjur fyrir utan Stjórnarráðið í Reykjavík fyrir stundu. Þegar þeir komu á staðinn kom í ljós að um heimatilbúnar saltpéturssprengjur var að ræða og hafði verið kveikt í þeim. Búið var að slökkva þegar lögreglan mætti."

Hvað er eiginlega um að vera á þessu landi ?  Trúi ekki að þarna sé um að ræða mótmælendurna, Eru kanski einhverjir að þessu til að láta þá líta illa út ?


Og allt að hækka .....

Það eru alltaf slæmar fréttir þegar eitthvað hækkar.  Sérstaklega á þessum tímum. 

61.000.- fyrir kort í 9 mánuði er þó ekki svo slæmt. Það þýðir amt. 6.778.- kr. á mánuði.  21 dagur amt. í vinnu - báðar leiðir að sjálfsögðu - þýðir 323.-kr pr.dag eða 161.50 pr. leið.  Ekki svo slæmt þegar miðað er við vegalengdir, sérstaklega ef þetta er notað um helgar líka þá er það enn minna pr.ferð.

Fyrir Reykvíkinga er gjaldið 30.500.- kr.  NB innan höfuðborgarsvæðisins, fyrir 9 mánaða kort.  Þarna er jú um að ræða mun styttri vegalengdir.  Fyrir þá sem ferðast á einkabílum er þetta mun dýrara og ættu því þeir sem það gera að hugsa til þess að það er hægt að ferðast á milli með strætó.  Reyndar tekur hellings tíma en ...


mbl.is Segjast þurfa að hætta að nota Strætóferðir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Engin furða !

Fólk er gjörsamlega búið að fá nóg.  Fjármálaeftirlitið, seðlabankastjórn, ríkisstjórn enn sú sama.  Enginn árangur í sjónmáli.  Það þarf breytingar og það strax!  Ekki bíða áfram og láta mótmælin stigmagnast.  Breytingar strax er krafan.  Því miður kemst ég ekki í dag, en er með í anda.


mbl.is Mótmælt á Austurvelli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband