Færsluflokkur: Bloggar
3.1.2009 | 15:23
Eitt af því sem átti ekki að skerða !
Hvers vegna hækkaði borgarstjórn ekki útsvarið eins og önnur sveitarfélög?
Ég er ekki hrifin af sköttum frekar en aðrir, en þeir eru nauðsynlegir til að borga samfélagsneyslu. Þvílíkur misskilningur hjá borgarstjórn að hækka ekki útsvarið heldur minnka þjónustu. Við horfum fram á aukið atvinnuleysi og væri þá ekki tilvalið að auka þátt símenntunar, til aðstoðar þeim sem verða atvinnulausir ? Nei þar er skorið niður. Ólíklegt að kennsla falli niður í einhverjum fögum, í lögboðinni starfsemi skólanna ..... ólíklegt er ekki jafnt og öruggt.
Hverslu mikið í viðbót á að skerða þjónustuna hjá Reykjavíkurborg?
![]() |
Verða að spara í skólunum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.1.2009 | 15:00
Er visa rað í gangi ?
Ákváðu eigendur að veita greiðslufrest - visa raðgreiðslur vaxtalausar líkt og jólin í Hagkaup?
kanski fyrsta greiðsla eftir að jólin klárast?
![]() |
Margmenni á útsölum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.1.2009 | 00:21
Stendur undir titlinum
![]() |
Ólafur Stefánsson íþróttamaður ársins 2008 |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.1.2009 | 22:23
Og á morgun verður hækkun á ...
ja... á hverju næst? Í gær hækkun á raforku, í dag hækkun á læknisþjónustu. Að vísu ekki á dagvinnutíma, en veikindi gera víst ekki alltaf vart við sig á þeim tíma. Hvaða hækkun verður tilkynnt um á morgun? Kanski enga en þá er bara spurning hvenær. Á meða sitja ennþá þeir sem bera ábyrgð á öllu við völd, ríkisstjórn, fjármálaeftirlit, seðlabankastjórn. Við eigum víst von á góðri hækkun íbúðalána en það var jú vitað. Og ekki neitt gert í því. Við megum bara vorga með bros á vör.
Hvernig ætli gangi með stefnu ríkisins eða banka á hendur Bretum? ... Á það bara að lognast útaf eins og mál olíufélaganna?
![]() |
Læknisþjónusta hækkar í verði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.1.2009 | 21:27
Er þetta brandari?
Ef svo er þá ekki einu sinni hægt að hlæja að honum. Samkvæmt myndbandi er ekki hægt að sjá annað en að þessir 2 séu með pústra að fyrrabragði, en kanski er það ekki rétt, bara kemur þannig fram á myndbandinu. Skrítið...
![]() |
Taldi sér ógnað |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
2.1.2009 | 20:53
Hvað ertu að hugsa Jóhanna?
eða ertu kanski ekki að hugsa? Hvað eru hinir á þingi að hugsa? Finnst þér og ykkur, fólki bjóðandi að koma svona fram við það eftir áralanga vinnu í þessu þjóðfélagi sem á að kallast velferðarþjóðfélag?
Ég vona svo sannarlega að þú sýnir þeim að minnsta kosti þá virðingu að svara bréfinu skriflega. Helst af öllu að sjá til þess að það þurfi ekki að loka Seli. Það eru jú fleiri sem þarna ráða en þið í ríkisstjórninni virðist skera of mikið niður í málum aldraðra, öryrkja og heilbrigðismálum. Þar sem síst mátti við.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.1.2009 | 20:52
Hvað ertu að hugsa Jóhanna ?
eða ertu kanski ekki að hugsa? Hvað eru hinir á þingi að hugsa? Finnst þér og ykkur fólki bjóðandi að koma svona fram við það eftir áralanga vinnu í þessu þjóðfélagi sem á að kallast velferðarþjóðfélag?
Ég vona svo sannarlega að þú sýnir þeim að minnsta kosti þá virðingu að svara bréfinu skriflega. Helst af öllu að sjá til þess að það þurfi ekki að loka Seli. Það eru jú fleiri sem þarna ráða en þið í ríkisstjórninni virðist skera of mikið niður í málum aldraðra, öryrkja og heilbrigðismálum. Þar sem síst mátti við.
![]() |
Spyr ráðherra hvað vistmenn hafi gert af sér |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.1.2009 | 20:08
Eftir því sem við bíðum lengur....
þá er jú næsta víst að við gleymum framgöngu ríkisstjórnarinnar í málum síðasta árs. Ef verður beðið til vors þá er jú líklegra að rísiksstjórnarflokkarnir fái meira fylgi og ef ekki vill betur til þá geta þeir fengið þriðja flokkinn í lið við sig, þann flokk sem ber stóra ábyrgð líka, framsóknarflokkinn til að mynda meiri hluta. Eitthvað í þessa líkingu gætu hugsanir stjórnmálamanna og kvenna í stjórnarflokkunum verið þessa dagana. En þessi orð Ingibjargar finnst mér minna óþægilega mikið á kosningabaráttu, reyndar líkt og orð Geirs um þjóðarkosningu.
Báðum virðast ekki hugnast kosningar strax og líklega rétt ákvörðun hjá þeim ef þau vilja sitja áfram því það virðist það rétta lausnin að tefja kosningar sem lengst, að minnsta kosti samkvæmt skoðanakönnunum !
![]() |
Alþingiskosningar samhliða |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.1.2009 | 19:37
Ja hérna !
Var ekki framkvæmdarstjóri nýbúinn að tilkynna um breytingar þessara manna? Amk. heyrðist mér það í viðtali við hann nýverið. Þá heyrðist mér hann tala um mannabreytingar á stjórnendasviði bankans, ég hlýt að þurfa að fá mér heyrnartæki !
![]() |
Kristján hættir hjá Kaupþingi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
2.1.2009 | 17:33
Ævilöng "ráðning" ?
Mér finnst eins og fleirum ansi lítið siðferði vera í dag hjá mörgum. En að formaður eins stærsta verkalýðsfélags skuli ekki hafa sagt af sér í kjölfar þess að hann afskrifað svo léttilega skuldir í banka sem hann var búinn að kaupa mikið af hlutafé í fyrir Lífeyrissjóð Verzlunarmanna finnst mér út fyrir öll mörk. Eru kanski skilmálar um "feitan" starfslokasamning á borðinu sem ekki á að koma upp um fyrr en um allt hægist? Maður bara spyr ...
Almennt er talið að mótframboð þýði ekki. En ef Gunnar Páll ´myndi taka þá siðferðislega réttu ákvörðun að segja af sér kæmi örugglega til framboðs milli nokkurra aðila. Nú ef ekki, þar sem laun formanns VR eru ekkert svo slæm, amk var Gunnar Páll ef ekki enn, með kr.1.750.000.- á mánuði, held ég að réttast sé að auglýsa eftir framkvæmdarstjóra. Held að margir væru til í að fá þó ekki væri nema helmingur þeirra launa fyrir vel unnin störf.
Gunnar Páll hefur eflaust gert ýmsa góða hluti fyrir félagið, en þessi mistök finnast mörgum réttilega of stór til að halda áfram störfum.
![]() |
Framboðsfrestur hjá VR framlengdur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)