Færsluflokkur: Bloggar
5.1.2009 | 20:46
PR tilraun ?
Bjarni viðurkennir að hafa ekki breytt rétt varðandi launastefnu,bónusa og fleira. Finnst þetta leiðinlegt, er reiður sjálfum sér og hefur í marga mánuði verið að leita að lausn. Þetta kalla ég friðþægingu. Hann virðist vera voða góður að endurgreiða 370 milljónir eftir að hafa fengið milljarða hjá bankanum. Bara yfirverð hlutabréfa var 550 milljónir, eftir skatta gerir það litlar 495 milljónir. Og allt eftir settum reglum segir hann. En á sama tíma segir hann að þetta hafi verið svo rangt sem bankarnir voru að gera. Eins yfirlýsingarnar um að hann hafi verið að setja verklagsreglur. Það séu bara aðrir sem hafi ekki farið eftir þeim. Týpískt "EKKI BENDA Á MIG" heilkenni !
Reyndar finnst mér þetta bara svona tilraun með PR starf, hann er kanski einn af þeim sem sér tækifærin skapast hér til að kaup eignir á tombóluverði, sérstaklega ef honum tekst að skapa sér ímyn "góða drengsins". Ég held bara að fólk sé búið að fá nóg af "ímyndar auglýsingabrellum".
![]() |
Endurgreiddi 370 milljónir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
5.1.2009 | 19:18
Það þarf að byrja aftur sem fyrst!
Á krepputímum ætti að vera uppbygging af hálfu ríkisins. Það má ekki gleymast að ef ekki verður haldið áfram með byggingu Tónlistarhússins tapast fjölmörg störf. Eins megum við ekki gleyma menningunni. Það vantar tónlistarhús hér á landi því án menningar verðum við andlaus. Það er nóg fyrir Íslendinga að vera í fjárhagslegri kreppu þó við séum ekki í andlegri kreppu líka.
Það verður að halda áfram með uppbyggingu. Stjórnvöld verða að finna leiðir til að framkvæma. Halda áfram með það sem byrjað hefur verið á og bæta við framkvæmdum td í gatnagerðar- og vegamálum. Nóg er þar að laga. Þau störf sem skapst við uppbyggingu eru mörg og það þarf svo sannarlega að gera eitthvað til að halda uppi atvinnu hér. Allt hjálpar !
![]() |
Vinnu við Tónlistarhúsið frestað |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
5.1.2009 | 17:57
Er lengri frestur fyrir ríkisstjórnina?
Hversu langur ætli fresturinn fyrir ríkisstjórnina sé að höfða málshöfðun? Hvers vegna er það ólíklegt að ríkisstjórnin höfði mál?
Það vantar alltaf meiri partinn í svörin Hvers vegna megum við ekki vita meira?????
![]() |
Ríkið styður málshöfðun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.1.2009 | 17:28
Er verið að renna á rassinn með allt saman?
Betra er seint en aldrei ! Tími til kominn að láta reyna á hvort ríkisstjórnin ætli að gera eitthvað. Steingrímur vonsvikinn eftir fundinn segir manni að ríkisstjórnin sé jafnvel runnin á rassinn með sína kæru fyrir hönd þjóðarinnar og finnst mér það mjög alvarlegt mál að ekki sé hugsað betur um hagsmuni okkar. Bankarnir gömlu eiga að sjálfsögðu báðir að kæra og þeir hljóta að gera það. Ef það er ekki gert er þá ekki um vítavert kæruleysi skiptastjóra að ræða ?
Við skulum vona að fólk sé hætt að sofa á verðinum og nái að kæra áður en verði of seint !
![]() |
Vítaverð hagsmunagæsla |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.1.2009 | 10:48
Embætti sem er treystandi
Mikið var ég fegin að heyra að það er þetta embætti en ekki eitthvað annað sem rannsakar þetta !
![]() |
Rekja eigendaflækjur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
5.1.2009 | 09:15
Sjálfsfriðþæging eða marktæk orð?
Ég tel að allir þeir semstýrðu fjármálakerfi okkar Íslendinga beri sína ábyrgð og að þeim beri að meta með ábyrgum hætti hvernig þeir axli hana. Þar undanskil ég ekki sjálfan mig og á jafnt við trú mína á krónuna, uppbyggingu launakerfis sem fór úr böndunum og hjarðhegðun sem leiddi til útlánaþenslu."
Hvað hann gerir í málunum verður forvitnilegt að sjá. Kemur hann aftur með þá peninga sem hann fékk greidda í formi bónusa og kaupauka fyrir rangar ákvarðanir aftur inn í þjóðfélagið eða eru þetta bara orðin tóm ?
Er þetta bara sjálfsfriðþæging? Það á eftir að koma í ljós.
![]() |
Bjarni Ármannsson: Ég get verið sjálfum mér reiður" |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.1.2009 | 19:13
Það er ekkert svo auðvelt!
Of margir sem eru félagsmenn í VR eru óánægðir með framgöngu Gunnars Páls formanns VR í að afskrifa skuldir. Það er meginástæða óánægjunnar. Siðferðislega er fólki misboðið og þess vegna heyrast raddir um allt þjóðfélagið að hann eigi að segja af sér. Eins sú staðreynd að hann er á ofurlaunum meðan taxtar VR manna eru ekkert til að hrópa húrra yfir. Hafa launin fyrir formannsstarfið eitthvað breyst ?
Eins er ekkert svo auðvelt að koma með mótframboð því í 20.greininni segir:
1. Til að tryggja stöðugleika í stjórn félagsins skal Nýársfundur, sameiginlegur fundur trúnaðarráðs og trúnaðarmanna á vinnustöðum, gera tillögu um skipun í öll embætti sem í kjöri eru hverju sinni með eftirfarandi hætti:
a. Kjörstjórn skal auglýsa eftir framboðum í dagblöðum og á vefsíðu félagsins. Framboðsfrestur skal vera að minnsta kosti tvær vikur og renna út eigi síðar en tveimur vikum fyrir Nýársfund. Framboðum skal skila á skrifstofu félagsins og skulu fylgja þeim upplýsingar um nafn og kennitölu. Skrifleg meðmæli 10 félagsmanna þarf vegna framboðs til setu í stjórn. Fyrir þá sem eru að bjóða sig fram eða endurnýja framboð sitt til setu í trúnaðarráði nægir rafrænt samþykki.
b. Fimm manna uppstillinganefnd, skipuð formanni og fjórum kosnum af trúnaðarráði og tveimur til vara, annast undirbúning Nýársfundar. Formaður félagsins skal kalla nefndina saman í fyrsta sinn eftir að hún hefur verið kosin og skiptir hún með sér verkum á fyrsta fundi. Nefndin skal gera tillögur um 4 stjórnarmenn og trúnaðarráð til framboðs í listakosningu og leggja þær fyrir Nýársfund til samþykktar. Í tillögu sinni um stjórnarsætin fjögur ber uppstillinganefnd að stilla upp fráfarandi stjórnarmönnum, ef þeir gefa kost á sér til áframhaldandi stjórnarsetu. Ef fleiri fráfarandi stjórnarmenn bjóða sig fram en sem nemur þeim fjölda sæta sem í boði eru skal nefndin gera tillögu um þá sem hafa setið styst samfellt í stjórn. Einnig skal nefndin taka tillit til jafnréttissjónarmiða við tillögu að skipun í stjórn. Komi fram tillögur á Nýársfundinum um frambjóðendur í stað þeirra sem eru tilnefndir á lista uppstillingarnefndar skal fara fram atkvæðagreiðsla á fundinum. Frambjóðendur skulu koma úr hópi þeirra sem tilkynntu framboð sitt í samræmi við auglýstan framboðsfrest kjörstjórnar.
c. Jafnframt skal á Nýársfundinum velja fulltrúa til að fylla þau sæti sem boðin eru fram í einstaklingskosningu, þ.e. þrjá aðalmenn í stjórn og þrjá til vara auk formanns annað hvert ár, úr hópi þeirra sem boðið hafa sig fram. Ef ekki berast nægilega mörg framboð eða ekki nógu margir hæfir einstaklingar bjóða sig fram að mati uppstillingarnefndar, hefur nefndin heimild til að bæta við nöfnum fyrir fundinn.
d. Atkvæðisrétt á Nýársfundinum hafa allir trúnaðarráðsmenn og trúnaðarmenn á vinnustöðum. Til að kosning á fundinum teljist lögleg þurfa a.m.k. 40% fulltrúa vera mættir á fund þegar atkvæðagreiðsla fer fram. Náist sú þátttaka ekki skal fara fram póstatkvæðagreiðsla meðal trúnaðarráðs og trúnaðarmanna. Meirihluti atkvæða í póstatkvæðagreiðslu ræður úrslitum.
2. Nái frambjóðandi til stjórnar ekki kosningu á Nýársfundi getur hann farið fram á allsherjaratkvæðagreiðslu um framboð sitt með því að afla 40 meðmælenda til viðbótar sem dreifast nokkuð jafnt frá a.m.k. 5 mismunandi vinnustöðum. Meðmæli þurfa að vera skrifleg sbr. lið 1a. Skila þarf inn meðmælendum eigi síðar en tveimur vikum eftir Nýársfund.
3. Framboðsfrestur fyrir listaframboð gegn samþykktum lista trúnaðarráðs og trúnaðarmanna fjögurra stjórnarmanna og trúnaðarráðs skal auglýstur innan tveggja vikna frá Nýársfundi og vera a.m.k. tvær vikur. Skriflegt samþykki allra þeirra sem í kjöri eru skal liggja fyrir þegar listi er fram borinn. Til þess að listi sem borinn er fram gegn lista trúnaðarráðs sé löglega fram borinn þarf skrifleg meðmæli 300 félagsmanna sbr. lið 1a.
Hefur hinn almenni félagsmaður eitthvað um þetta að segja?
![]() |
Stjórn VR langþreytt á rangfærslum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
4.1.2009 | 16:31
Öllu má nafn gefa
Það ætti að vera nóg ástæða fyrir stjórnarslitum að fólkið í landinu vill kosningar. Nú þegar hafa liðið mánuðir og stjórnin dregið lappirnar í von um að við bara gleymum öllum mistökum síðustu ára. Mistökin hjá sjálfstæðisflokki, samfylkingunni og ekki má gleyma framsókn. Það þarf enga átyllu eins og Esb til þess.
Að vísu eru Geir og Ingibjörg BÆÐI talandi um þetta smáatriði eins og þau séu komin í kosningabaráttu. Málið er að þessi ríkisstjórn svo og síðasta sváfu fast á verðinum og hafa ekki gert nóg til að taka á þeim mistökum sem gerð voru. Þvert á móti. Seðlabankastjórn og Fjármálaeftirlit ennþá með sömu starfsmenn. Ríkisreknu bankarnir ennþá með fullt af gamla liðinu. Fólkið í landinu vill kosningar. Að sjálfsögðu notfæra Ingibjörg og Geir sér allt sem þau geta til að réttlæta sig og sinn flokk. Það dugar varla núna því þau eru hluti af því sem fólkið vill burt.
![]() |
ESB aðeins átylla fyrir stjórnarslitum? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
4.1.2009 | 15:35
Hitti naglann á höfuðið !
![]() |
Ruslatunnur í sparifötum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.1.2009 | 14:36
Acradabada og málin leyst !
Ekki mikið mál fyrir Einar að leysa skuldastöðu sjávarútvegsfyrirtækja bara gera upp á gömul gengi! Frábær lausn fyrir hverja? Raunveruleiki eða raunveruleikafirring? Nú þegar bankarnir eru orðnir að ríkisbönkum aftur er þetta kanski eitthvað sem Einar getur gert. Veifað hendi og sagt töfraorð og skuldir sem hafa orðið til síðustu mánuði þurrkaðar út !
Sem landbúnaðarráðherra hlýtur hann að gera það sama fyrir bændur og afurðastöðvar. Síðan náttúrulega viðskiptaráðherra hann verður að gera það sama fyrir fyrirtækin í landinu því það má jú ekki mismuna fyrirtækjum, ekki heldur þeim ríkisreknu eins og bönkunum.
Þá er það félagsmálaráðherra. Hún hlútur að fá töfrasprotann lánaðann og fella niður alla verðtryggingu lána sem hefur hlotist af þessu og eins gengisvísitöluna. jibbbbbbbíiiiiiiiííííííííííííííííí! Allar skuldir Íslands gufaðar upp!
Æ nei, gleymdi því að almenningur á að borga brúsann !
![]() |
Skuldastaðan mun batna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)