Færsluflokkur: Bloggar

Varð einhver hissa?

Alla vega ekki hún ég. Reyndar var ég orðin mjög leið á þessu Baugsmáli sí endurteknu, en þetta virðist nú vera ósköp eðlilegt mál. Mér finnst nú bara að þetta fólk megi vera ánægt með rannsóknina því ef eins og þau segja að allt sé rétt og eðlilegt í þeirra bókhaldi verða þau hreinsuð af skattalagabrotum sem svo margir hafa haldið fram að hafi verið framin hjá þeim.
Hins vegar er það ef fólk er hrætt við rannsókn að það reyni að koma í veg fyrir hana ......
mbl.is Kröfum Jóns Ásgeirs vísað frá dómi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Á krepputímum ber ríkinu að framkvæma

ýmsa hluti. Til dæmis að halda uppi atvinnu. Það er margt sem hægt er að gera, fara í vegaframkvæmdir, klára byggingar sem byrjað er á, viðhald ýmis konar og þjónustu. Hvernig ríkinu gengur að fá lán til þess er annað mál en kanski væru lífeyrissjóðirnir reiðubúnir að lána í þennan flokk, væri síst vitlausara en að kaupa stóra hluti í nýju bönkunum.
Ef ekkert er að gert hvernig verður staðan þá í mai þegar skólarnir klárast? Er eitthvað farið að hugsa til viðbragða við þeim fjölda sem bætist við á vinnumarkaðnum þá?
mbl.is Yfir 11.300 atvinnulausir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ísraelar sýna sinn innri mann

og það er hryllileg sjón. Það sem verra er að þeir njóta stuðnings Bandaríkjanna og fá hjá þeim vopn. Á sama tíma og Sameinuðu Þjóðirnar beita sér fyrir vopnahléi sem þeir segja að Palestínumenn séru tilbúnir að samþykkja flýta Ísraelar sér að eyðileggja það sem þeir geta og myrða sem flesta.Skólar, sjúkrahús, engu og engum skal hlíft. Ég held að tími sé kominn til að Sameinuðu Þjóðirnar fari að leita að öðrum stað en New York fyrir byggingu sína því herskárri þjóð en Bandaríkin er erfitt að finna.
Þeir Ísraelar sem eru við völd eru búnir að sýni sitt sanna eðli og það hræðileg sjón.
mbl.is Hörðustu árásir á Gasaborg til þessa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Og ekkert gert

Meðan ríkisstjórnin situr og gerir ekki neitt vegna hryðjuverkalaganna í sem vinir okkar í Bretlandi beittu okkur eru áhrifin ennþá hræðileg.

Greiðslutryggingafyrirtækin tvö hurfu frá því að meta stöðu hvers fyrirtækis nokkrum dögum eftir að hryðjuverkalögin voru sett á Landsbankann í Bretlandi  og hafa ekki gert neitt síðan vegna þess að þessi blessaða ríkisstjórn Íslands er ekkert að aðhafast í þessum málum.

Og eftir sitja fyrirtæki þessa lands sem og aðrir landsmenn með stimpil hryðjuverkamanns.


mbl.is Neita að tryggja Ísland
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Til hvers var hún að opinbera þetta

ef hún vildi ekki fá umræðu á opinberum vettvangi um svona aðferðir ? Eða var þetta kanski ekki aðferð ráðherra til að þagga niður í henni?
Ráðherrar og aðrir ráðamenn hafa lengi gert þetta að "ráðleggja" fólki að þegja um vitneskju sína,kanski ekki alveg allir en ansi margir.
Var hún kanski beðin um þessi síðustu ummæli sín að segja þetta búið? Gæti allt eins verið.
Eða var þetta kanski eftir allt eins og Ingibjörg segir ráðlegging vinkonu og Sigubjörgu Siggeirs vantaði bara meiri athygli?

mbl.is Ráðlegging eða boð?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki slæm dagslaun !

Að ganga út í lok vinnudags með 1.1 milljarð, ekki slæmt. Hvað voru þeir margir milljarðarnir sem Bjarni fékk fyrir störf sín hjá bankanum, voru það ekki rúmlega 10 milljarðar? 1 milljarður á ári ekki slæmt, en þetta var náttúrulega allt fyrir frábæra stjórnun og hversu bankinn hagnaðist. Þegar Bjarni borgaði litlar 370 milljónir til baka, áttu þá allir að falla í stafi yfir hversu heiðarlegur maður í viðskiptu hann væri ? Eftir að viðurkenna að fallið er bankamönnum að kenna hefði þá ekki verið rétt að skila aftur öllum því sem hann fékk fyrir "hagnað" bankanna og eins að hinir sem voru líka ráðnir uppá sömu kjör skiluðu því sem þeir fengu v. "hagnaðar" ?

mbl.is Gengu að kröfum Bjarna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað verður um þær?

Hvað verður síðan um þessar íbúðir ? Eru þær seldar hæstbjóðanda eða er fólki gert kleift að búa áfram í þeim með því að leigja þær ? Annars hélt ég hefði séð að innheimtuaðgerðir ættu ekki að vera harðar eftir fall krónunnar, kanski eru þessar íbúðir frá því áður en bankahrunið og verðbólguskotið hressilega varð ...
mbl.is Lán keypt með afslætti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað segir ráðvendnin?

Bankastýra Landsbankans hefur gefið út að hún hætti sem bankastjóri.  RÉTT ákvörðun

Bankastjóri Kaupþings hefur gefið út að hann ætli að "sækja" um stöðuna afur.  RÖNG ákvörðun.

Bankastýra Glitnis er ekki tilbúin með yfirlýsingu.  Röng ákvörðun að gefa ekki út strax að hún hætti.

Gamlir yfirmenn gömlu bankanna eiga að snúa sér að öðru.  Það er það eina rétta.  Vonandi verða einstaklingar í bankastjórnum þessara 2ja banka með þau heilindi að ráða EKKI gömlu stjórana aftur. 

 


mbl.is Staða bankastjóra auglýst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er þarna ástæðan fyrir leyndinni?

Fóru þessir peningar bara ekki inná reikning í Lúxemborg? hmmm ekki skrítið ef svo er að "ekki má" skoða reikningana þar .... var markmiðið að nota þá reikninga sem felureikninga?


mbl.is 25 milljarða króna greiðsla týnd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er nema von?

Ég er svo sannarlega ekki að afsaka þjófnaðinn þvi ég hata alla slíka gjörði, en  sorry, hver hefur efni á einhverju þessa dagana, hvað þá að kaupa klósett ef vantar??????


mbl.is Klósetti og blöndunartækjum stolið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband