Færsluflokkur: Bloggar

yikes!

Var einhver sem hefur keppt í  Monster truck madness í u.s.a. sem var á ferð hérna og hélt að hann væri ennþá á stórum trukk  ???????????


mbl.is Fjögurra bíla árekstur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Grimmd gyðinga.

Hitler lét gyðinga labba inn í gasklefa til að myrða þá. Meira en hálfri öld seinna, eftir að hafa dregið marga nasista fyrir stríðsdómsstóla hvað gera gyðingar þá? Jú, láta hóp palestínumanna inní byggingu sem þeir síðan varpa sprengju á.
Þarna sýna gyðingar grimmd sína og ættu allar þjóðir að slíta stjórnmálasambandi við þá og setja viðskiptabann á þessa fjöldamorðingja.

mbl.is Sprengdu hús fullt af fólki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hve margar svona fréttir eigum við eftir að fá?

Nýjar fréttir um að ríkissjóður sé að tapa beint og óbeint meiru v. bankanna og útrásarmannanna eiga örugglega eftir að berast einhvern tíma í viðbót. Þjóðin er reið og það með réttu. En það versta er, er að þau mennirnir sem eru við völd segja okkur ekkert.


mbl.is Ríkið tapar milljörðum á veðlánum Seðlabankans
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gjörsamlega siðlausir !

Þetta er of ótrúlegt til að vera satt!  Þeir sömu og eiga MJÖG stóra sök á bankahruninu á Íslandi krefjast næstum 190 milljarða v. gamla Kaupþings !  Er ekki í lagi með fólk???  Hvernig verður með restina af þessum útrásarguttum ætla þeir síðan allir að reyna að blóðmjólka þjóðina eina ferðina enn ? Verða þeir ekki ánægðir fyrr en þeir sjá okkur sauðsvartan almúgann eignalausan og og án þjóðernis? 

Hvernig er hægt að vera svona gjörsamlega siðblindur?

Máltækið gamla "Margur verður af aurum api" er ansi vægt til orða tekið miðað við þessa menn.

Held að "Skepnuskapurinn ríður ekki við einteyming" sé betra.


mbl.is Krafa Kjalars 190 milljörðar króna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Smáaurar!

Bara ca. átta og hálf milljón á mánuði í 22 mánuði sem hann vinnur ekki?  Samtals 187 milljónir? 

Greyið hlýtur að vanta sárlega salt í grautinn


mbl.is Mál Baldurs tekið fyrir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stefna Ísraelsmenn að útrýmingu

allra íbúa á Gazasvæðinu, eða jafnvel útrýmingu á öllum Palestínumönnum?  Það er amk engu líkara.  Bandaríkamenn hafa stutt við bakið á þeim í áratugi vegna hagsmunatengsla og meðan þeir hafa þann stuðning halda þeir trúlega áfram fjöldamorðunum.  Sagan endurtekur sig, nú eru það hins vegar þjóð þolenda helfararinnar sem standa fyrir fjöldamorðum.

Vonandi skilar sendingin sér á leiðarenda.


mbl.is RKÍ sendir 10 milljónir króna til Gasa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nýjasta sjónarspilið.

Þá er búið að setja upp nýjustu leiksýninguna, og almenningur á að fá að taka þátt í henni. Reyndar heyrt vel af aðalleikurum látið þannig að kanski verður þetta til góðs. Málið er hinsvegar: Það er búið að fóðra okkur á þvílíkum tröllasögum og sjónarspili undanfarna mánuði þannig að ég efast um að nokkur hafi trú á þessu. Ég á eftir að sjá að þetta sé rétt og til einhvers gagns. Trúi því þegar ég sé það !

mbl.is Rannsóknarnefnd leitar liðsinnis almennings
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hlusta ráðherrar einhvern tíma

á fólkið í landinu? Sama þó um sé að ræða fjölda fólks sem mótmælir þessum niðurskurði og "sameiningu til að ná fram samlegðaráhrifum" á mörgum stöðum, jafnvel þó um væri að ræða stóran hluta þjóðarinnar þá verður trúlega svarið hjá Guðlaugi líkt og öðrum ráðherrum, uss bara smá brot af mótmælum skipta engu máli. Skítt með fólkið í landinu, atvinnu og heilbrigði þess.
mbl.is Skora á ráðherra að endurskoða afstöðu sína
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

1,5% stýrivextir !

Ekki slæmt, sérstaklega þegar tekið er tillit til þess að NAUÐSYNLEGT þykir að lækka þá til að koma efnahagsástandinu á rétta braut, eða amk að það versni ekki. Munur að búa í landi þar sem ríkisstjórn og seðlabankar hugsa og vinna sína vinnu.
mbl.is Stýrivaxtalækkun í Bretlandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lengi getur vont versnað

Ég hef aldrei skilið hvers vegna Guðlaugur Þór var valinn í ráðherrastöðu, hvað þá heilbrigðisráðherra embættið. Hann er einfaldlega ekki starfi sínu vaxinn. En eitt er víst, hann á ekki eftir að sína sóma sinn í að víkja út starfi frekar en Geir, Ingibjörg og Árni Matt. Það eina sem virðist komast að hjá þeim eru völd og að halda stólnum. Þvílík hneisa.
mbl.is Ráðherra segi af sér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband