4.12.2008 | 19:21
ótrúlegt ?
Við höfum í langan tíma búið við skrítna skráningu íslensku krónunnar gagnvart öðrum gjaldmiðlum. Eins höfum við búið við skrítna vísitölu í langan tíma, jafnvel enn lengri. En það er bara gaman að þessu öllu, 20 dagar til jóla og kanski lækkar vöruverð eitthvað og þar með vísitalan og vísitölulánin hækka ekki alveg eins mikið .... kanski verður hægt að fleyta okkur áfram á meðan þessi krísa er að ganga yfir ... amk fram að næstu kosningum !
Fleyting gekk framar vonum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Fleyta áfram á kostnað hvers? Kannski á að brenna IMF lánið til þess að almenningur haldi að krónan sé að styrkjast (að vísu hvergi nema á Íslandi).
Sjá gegnið í Evrópska seðlabankanum
Latest (4 Desember 2008): EUR = ISK 290.00
http://www.ecb.int/stats/exchange/eurofxref/html/eurofxref-graph-isk.en.html
Þór Jóhannesson, 4.12.2008 kl. 19:43
góð spurning :)
Sigurbjörg, 4.12.2008 kl. 19:57
Ef hægt er að kaupa evrur á 170 íslenskar krónu á millibankarkaði á íslandi og einhverjir fávitar eru að borga 290 kr fyrir hana hjá evrópska seðlabankanum, Þá er það eiginlega bara þeirra vandamál, og hefur augljóslega ekkert að gera með gengi íslensku krónuna.
Guðmundur Jónsson, 4.12.2008 kl. 22:33
Það hafa greinilega margir orðið fyrir gríðlegum vonbrigðum að krónan skyldi styrkjast í dag. Maður á svolítið erfitt að skilja slíkt fólk.
Ragnar Gunnlaugsson, 4.12.2008 kl. 22:56
Ragnar, ég held að allir Íslendingar, þar á meðal ég, hafi orðið mjög glaðir við þessa frétt. En er hún rétt verðlögð hér? Ef svo er þá verðum við öll mjög glöð! Reyndar erum við orðin mjög þreytt á ósönnum fréttum og óskandi að því linni. Líklega vantar trú á að þetta breytist ekki á morgun! ... en sjáum til, kanski verður krónan bara einhvers virði aftur, það væri óskandi :)
Sigurbjörg, 4.12.2008 kl. 23:06
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.