Bíddu nú við Steingrímur,

Hver var það sem vildi í mál á sínum tíma og neitaði því að skrifað yrði undir skuldirnar og að almenningur yrði látinn borga?  Ertu búinn að gleyma því hvað þú sagðir?  Hvað með orð þín um að láta á þetta reyna fyrir dómstólum?

Hversu margir kusu þig því vegna orða þinna þá og að sem virtist vera staðfesta þín?

Væri ekki gott að sjá stjórnmálamenn einu sinni efna það sem þeir lofa eins og að standa vörð um hagsmuni heimilanna í landinu og þar með talið heimili ellilífeyrisþega og öryrkja ?

En hvernig er það, það voru sett neyðarlög um bankana á síðasta ári, hvernig væri að setja neyðarlög varðandi hagnað þeirra og eignir sem þeir mynduðu með því að stefna Íslandi í gjaldþrot?(sem reyndar má deila um hvort sé hagnaður eða þjófnaður)

 

 


mbl.is Ósvífin og ódýr afgreiðsla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Efaðist hann virkilega?

Hvers vegna reyndi Hannes að fá húsleitina dæmda óréttmæta?  Hvað var það sem hann hélt / vissi að myndi finnast?  Hvað hafði hann að fela?   Kemur kanski í ljós eitthvað óheiðarlegt þrátt fyrir hans yfirlýsingar?  Uss svei skamm og allt það.  Hvernig væri að gera húsleit hjá öllum þessum "útrásarvíkingum" sem reyndust bara innrásarvíkingar sem herjuðu á okkur alla Íslendinga og eru að gera heiðarlega íbúa þessa lands gjaldþrota og það sem meira er, láta börnin sem eiga að byggja upp framtíðina eignarlaus ??????
mbl.is Húsleitir í máli Hannesar lögmætar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Björgunarsveitir !

Takk takk !

Við eigum einhverjar frábærustu hjálparsveitir sem til eru !   Ég bið allan almenning að gleyma því aldrei ! Styrkjum þeirra starf ! Þeir /þær eru í einu orði frábært dæmi um allt annað en sjálfselsku !


mbl.is Konan komin á sjúkrahús
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Til hamingju VR félagar !

Ég óska Kristni sem og okkur öllum VR félögum til hamingju. Vonandi verður með nýrri forystu og stjórn komist hjá spillingu innan VR sem og Lífeyrissjóðs VR. Þetta boðar breytta tíma, eitt skref í einu. Nú hlýtur allt að verða uppá borðinu !
mbl.is Kaupþingsmálið vó þungt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tími til kominn !

Það er svo sannarlega tími til kominn. Til dækmis er búið að frysta eignir manna í Bandaríkjunum en hér hafa menn fengið að halda áfram að færa til fjármuni. Burtséð frá því hvort þeir séu sekir eða "saklausir". Trúlega eru flestir þessara bankagreifa og annarra útrásarvíkinga"saklausir" gagnvart lögum. En kanski hafa einhverjir vikið út fyrir meira en bara siðleysið.
Svo má deila um það hvort þetta hefði ekki þurft að gerast strax í október !
mbl.is Heimild til að frysta eignir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frábært !

Loksins var allt frumvarið fellt úr gildi, tími til kominn. Ekkert svona hálfkák eins og var síðast !
Gott væri samt að fá í gegn líka eitthvað af þeim frumvörpum sem bjarga á heimilunum í landinu ....
mbl.is Eftirlaunafrumvarp samþykkt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bjarga þeim og fá kvótann til baka ?

Áður en hágengistefna ríkisstjórnar Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks kom til var stjórnunartæki Seðlabankans fyrir sjávarútveginn gengisfelling. Krónan var felld fiskurinn seldist og þeir gátu haldið áfram. Almenningur hins vegar vaknaði oft upp við vondan draum, spariféð brunnið upp eina ferðina enn. Þetta var fyrir tíð verðtryggðra sparireikninga.
Ríkisstjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks tók sig til pg útbjó kvótakerfið. Það ól af sér kvótakónga sem stórgræddu á öllu saman. Þeir flestir einkavinir ríkisstjórnarinnar eða þá innan hennar eins og Halldór Ásgrímsson fyrrv.formaður Framsóknarflokksins.
Þessir kvótakóngar eru búnir að koma peningunum annað í flestum tilfellum ef ekki öllum.
Nú verður trúlega að koma sjávarútveginum til bjargar eins og bönkunum, ekki á ég von á að kvótakóngarnir borgi neitt til baka. Ef svo verður er það ekki lágmarkskrafa að færa kvótann aftur í þjóðareign?
mbl.is Alvarleg staða sjávarútvegs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eiga erlendir farandverkamenn virkilega rétt á vinnu framyfir Íslendinga ?

Það er ótrúlegt að fyrirtæki í eigu íslenska ríkisins segi upp Íslendingum framyfir erlendum farandverkamönnum en DV greinir frá í dag að fimmtán starfsmönnum Steypustöðvarinnar hafi verið sagt upp í byrjun febrúar. Allir þessir 15 sem reknir voru eru Íslendingar. Hins vegar er helmingur starfsmanna þarna sagður Pólverjar.
Einhvern veginn þykir mér það fullvíst að þessu hefði ekki verið svona farið ef þetta hefði verið í Póllandi. Þar hefði örugglega Íslendingunum verið sagt upp.
Mér finnst þetta með ólíkindum, getur þessi frétt virkilega verið rétt?

mbl.is 16.685 skráðir á atvinnuleysisskrá
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Yfirklór hjá Björgólfi Thor?

Eða hefur hann eitthvað til sönnunar sínu máli? Ef svo er, hvers vegna sannar hann það ekki við gögnum?
Eða það sem líklegra er, eru þau kanski bara ekki til ?
mbl.is Kastljósið stendur við fréttina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Var þetta ekki viðbúið?

Aukið atvinnuleysi, lækkandi laun, minnkandi kaupmáttur, hækkanir sem hafa orðið á áfengi. Var þetta ekki viðbúið? Jú mikil ósköp nú verður ríkið af smá tekjum kanski en kaupmenn sem flytja inn víngerðarefni svo og þeir sem selja sykur og ger selja trúlega meira. Heimilisiðnaðurinn fer á fullt á krepputímum.
mbl.is Samdráttur varð í sölu áfengis
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband