Færsluflokkur: Bloggar

samskiptaleysi eða áhugaleysi?

Hvernig getur það gerst á upplýsingaöld að bankamálaráðherra og seðlabankastjóri sama lands hafi engin samskipti í tæpt ár? Frá mínum bæjardyrum séð er þetta bara spurning um hvor segir ósatt, björgvin eða dabbi ...
mbl.is Hitti Davíð ekki í tæpt ár
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er hann ekki að grínast???????

Það gilda augljóslega aðrar reglur fyrir dabba en aðra !
mbl.is Davíð ber fyrir sig bankaleynd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

dabbi litli ótrúlegur

Er maðurinn gjörsamlega raunveruleikafirrtur? Það verður gaman að sjá hversu margir kjósa lista sem Davíð er á ef hann býður sig fram til alþingiskosninga. Hafið vit á að láta hann ekki hanga áfram þrátt fyrir hótanir hans að snúa aftur,fáum alvöru mann í seðlabankastjórastöðuna. Látum hann fara.
mbl.is Davíð: „Þá mun ég snúa aftur"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

furðulegt.... eða kanski ekki

Voru kanski margar þessar tilkynningar hrekkur eða illvilji? ... ég bara spyr fyrst ekkert kemur útúr þessu ....  
mbl.is Rúmlega 1100 tilkynningar á þremur árum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

átti einhver von á annari niðurstöðu?

Það var ekki von á öðru og það vissu allir.   Líka ráðherrar og alþingismenn.  Enginn undanskilinn, hvorki stjórn né stjórnarandstaða. 
mbl.is Kjararáð getur ekki lækkað launin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

meiri háttar vonbrigði :(

Ég varð fyrir meiri háttar vonbrigðum þegar ég las þessa frétt.  Henni fylgdi stefnuyfirlýsing Seðlabankans og ég sem vonaði að dabbi kóngur og rest bæði af seðlabankastjórum og bankaráði væri með yfirlýsingu um afsögn og það yrði nýtt bankaráð og bankastjórn komin áður en árið 2008 væri liðið ..... Bummer :(

Maður má alltaf lifa í voninni Wink


mbl.is Gengislækkun stendur stutt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvernig fer með upplýsingar frá þeim?

Fáum við upplýsingar frá þeim um viðskipti Íslendinga þar áður en bankinn verður seldur? eða verður selt án þess að upplýsingar berist til að viðhalda bankaleyndinni og þeir reikningar þar sem talað er um að séu notaðir fyrir peningaþvætti komi ekki fram fyrir sjónir rannsóknarmanna? Væri gaman að vita það .......
mbl.is Ákvörðun tekin um sölu Kaupþings í Lúxemborg eftir viku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það er ekki í lagi með stjórnvöld

Á krepputímum eiga stjórnvöld að auka atvinnumöguleika, fara í framkvæmdir td.vega- og byggingaframkvæmdir. Við erum með aldeilis skondin stjórnvöld. Ég hef ekki séð neitt nema niðurskurð frá þeim. Núna síðast niðurskurður og uppsagnir hjá RUV. Að sjálfsögðu er í lagi að lækka laun toppanna þar, en er nauðsynlegt að fækka svona mikið starfsfólki?
mbl.is 700 milljóna sparnaður hjá RÚV
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ætli að þau lækki?

Það verður forvitnilegt að fylgjast með því... og eins ef þau lækka ekki hversu fljót þessi ríkisstjórn verður til að setja neyðarlög til að lækka launin sín !
mbl.is Laun embættismanna ákvörðuð eftir helgi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

manni getur nú blöskrað !

Nú er mér nóg boðið ! Ekki nóg með hvernig gunnar páll formaður VR sé búinn að vera með ofurlaun bæði hjá VR svo og sem bankaráðsmaður hann leyfði sér að strika yfir skuldir og með einu pennastriki eyddi hann af fé okkar sem borgum til VR, að hann skyldi ekki hafa manndóm til að segja af sér ??????? Heldur ætlar hann að bjóða sig fram til endurkjörs og lætur VR borga sína kosningabaráttu (amk. að hluta), því það er ekkert annað en það sem hann er að gera, hvernig sem hann reynir að fóðra það !!!!!!!!!

Svei þér gunnar páll fyrir lélegt siðgæði !!!

Úr frétt DV í dag:
„Að Gunnar Páll skuli nota fé félagsins og í rauninni glepja menn með það fyrir augum að fá þá til jólahlaðborðs og þvinga þessu að mönnum við borðhaldið, það er náttúrlega afar ósmekklegt en þetta lýsir því náttúrlega hvernig hann hefur haldið á málum og mér þykir það miður fyrir félagsmenn.“
Gunnar Páll Pálsson segir að engin pressa hafi verið á fólk að skrifa undir listann. „Við vorum löngu búin að ákveða að gefa trúnaðarráði og trúnaðarmönnum gjöf og ákváðum að hafa jólahlaðborð í ár.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband