Færsluflokkur: Bloggar
2.1.2009 | 16:17
Ótrúlegt minni !
Ja hérna, 36% þjóðarinnar fylgjandi ríkisstjórninni. Þvílíkt minni sem Íslendingar hafa!
Að þeir 2 flokkar sem bera mesta ábyrgð framsókn mælist enn með eitthvað fylgi, hvaðþá 7.5% er með ólíkindum! Og að sjálfstæðisflokkur sé ekki kominn undir tveggja stafa tölu hlýtur að gera þá glaða. Þriðji flokkurinn sem hefur verið í stjórn, þó skemmstan tíma mælist með 28% ... of mikið miðað við framgöngu síðustu mánuða.
Það sem er að gerast er það sem ríkisstjórnarflokkarnir vissu, Íslenskir kjósendur láta valta gjörsamlega yfir sig og þakka fyrir að fá að borga bruðl og rangar ákvarðanir stjórnvalda !
Svei mér þá, ég held að páfagaukarnir hafi meira minni !
![]() |
Ríkisstjórnin nýtur stuðnings 36% kjósenda |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.1.2009 | 14:42
Nýr ráðgjafi?
![]() |
Styrmir: Vill skera niður í utanríkisþjónustunni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.1.2009 | 14:18
Dýralækningar eða fjármál heillar þjóðar ?
Fólk er orðið ansi þreytt á að bíða eftir að ráðherrar taki ábyrgð. Kanski væri núna rétti tíminn fyrir Árna að taka til við dýralækningar eða er það ekki hans sérsvið?
![]() |
Ganga á fund fjármálaráðherra |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.1.2009 | 12:17
Trúlega sú fyrsta af mörgum !
![]() |
Orkuverð RARIK hækkar um 7-14% |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.1.2009 | 11:47
Gleðilegt nýtt ár
![]() |
Ellefu sæmdir heiðursmerkjum fálkaorðunnar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
31.12.2008 | 00:30
Þó fyrr hefði verið!
Reyndar skil ég ekki hvers vegna þeir eru ennþá við störf, held að fáir skilji það nema ríkisstjórn.
En eru þetta brúttó laun? Vantar þarna inn í einhver hlunnindi, svo sem bíla og fleira?
Ef svo er, er ekki tími til kominn að fá að sjá heildarlaunin? Varla eru þau skattfrjáls og að sjálfsögðu eigum við rétt á að fá að fjá ÖLL laun þessara manna og kvenna sem eru í vinnu hins opinbera. Það erum jú við sem þau eru að vinna fyrir.
Það væri fróðlegt að sjá heildarlaun þingmanna og ráðherra þegar ALLT er tekið. Öll laun og allir styrkir. Bíð spennt eftir því að sjá það.
En líklega vilja þeir ekki birta HEILDARLAUN sín á sama tíma og þeir skerða laun aldraðra og öryrkja.
![]() |
Laun seðlabankastjóra lækka |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
30.12.2008 | 22:33
Ja hérna!
Verður virkilega til Framsóknarflokkur mikið lengur? Hélt hann væri tímaskekkja þannig að flokkurinn yrði lagður niður fyrir næstu kosningar ....
![]() |
Sigmundur Davíð býður sig fram til formanns |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.12.2008 | 18:45
Ótrúleg mannvonska ríkisstjórnar !
Þvílík skömm og hneisa ! Þvílík mannvonska sem skín í gegn hjá ríkisstjórninni nú þegar ástandið í þjóðfélaginu versnar. Það eru aðrir hlutir sem má skera niður en í heilbrigðiskerfinu, sérstaklega þegar blasir við þjóðinni 10% atvinnuleysi. Það má búast við að fleiri verðir þunglyndir en hefur verið og það er ekkert skrítið þegar fólk þarf að horfast í augu við að geta ekki unnið þrátt fyrir vilja og getu til þess. Það hefur leikið margan manninn og konuna illa. Einn af fylgikvillum atvinnuleysis er því miður þunglyndi og áfengis- eða vímuefnaneysla. Og hvernig bregðast stjórnvöld við?
Jú, skera niður einmitt þar svo minnka þarf STÓRLEGA þjónustu við geðdeildir og SÁÁ.
Ég skammast mín fyrir að búa í landi þar sem ríkisstjórn sínir slíka mannvonsku !
![]() |
Uppsagnir á geðdeild FSA |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
30.12.2008 | 18:26
Enn ein einkavinaráðningin?
Það ríður ekki við einteyming þessi árátta sjálfstæðismanna að ráða í stöður án þess að auglýsa þær lausar. Þeir finna einatt afsakanir eins og sá harði núna. Fáránlegt. En skiptir einhverju máli að auglýsa stöður þegar þeir eru búnir að ákveða fyrirfram hverja þeir ætla að ráða?
![]() |
Var óheimilt að ráða án auglýsingar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.12.2008 | 16:52
Heilar 2 krónur og 10 aurar fyrir kwstundina?
Þá er búið að semja við Norðurál um raforkuverð. Það mun vera háð gengi dollarans og álverði.
Verðið á raforku hefur kvisast út og las ég það í mbl áðan að þeir hafa heimildir fyrir því að kwst. sé heilar kr.2.10.- !
Það er eðli samninga að eftir því sem þú ert stærri kaupandi því betra verð færðu. En öllu er hægt að ofgera. Vinstri grænir greiddu atkvæði gegn þessu verði og Samfylkingin sat hjá. En þetta er sem sagt samþykkt 2.10 krónur. Ca. fjórðungur þess sem íslensk fyrirtæki og almenningur borgar.
Ætli þetta sé rétt? Ef svo er er ég ekki hissa á að almenningur fái aldrei upplýsingar !
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)