Hvers vegna ekki að sleppa þeim ?

Gott mál að lækka fjárframlög til stjórnmálaflokka. Reyndar fáránlegt að lækka þau ekki meira. Hvernig væri að jafnskipta niður á flokkana ? Það ætti að banna þessi fjárframlög og eins auglýsingar. Hægt er að hafa umræðuþætti og framsöguþætti í útvarpi og sjónvarpi. Eins mætti hugsa sér að hver frambjóðandi/flokkur fengi eina opnu í dagblaði vikulega til kosninga til að kynna stefnu sína. Þetta ætti að vera nóg og þá yrði ekki þessi umræða um að oeningavaldið næði fólki á þing.Nei, þetta mega stærri flokkar og peningafólkið ekki heyra ! Þeir vilja ekki jafnræði ! 

Ég mæli með því að sleppa fjárframlögum til stjórnmálaflokka og í stað þess setja þá í heilbrigðiskerfið. Þar væri þeim mun betur borgið!


mbl.is Vill lækka fjárframlög til stjórnmálaflokka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er Þorgerður líka vælukjói?

Ja hérna, átti sko ekki von á því að Þorgerður færi í þennan gír eins og Geir og fleiri. Trúlega eru þá allir fyrrverandi ráðherrar og gamlir þingmenn sjálfstæðisflokksins svona vælukjóar....
mbl.is Gagnrýna forsetaskipti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jón Ásgeir og Davíð...

Vitið þið um nokkra aðra einstaklinga sem haldnir eru jafn miklu mikilmennsku-æði og þessir tveir?
mbl.is Jón Ásgeir kennir Davíð um fall Baugs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Allt betra en tjallinn

Fegin verð ég ef Norðurlandaþjóðirnar koma til með að sjá um lofteftirlit hér. Vona svo sannarlega að Bretarnir fái ekki að koma hér nálægt með her. Ef Bretinn leyfir sér það mætti túlka það sem stríðsyfirlýsingu eftir að þeir settu þjóðina á hryðjuverkalistann.
mbl.is Norðurlöndin gæti loftrýmis Íslands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tryggvi hættur, Landsbankinn hættir við..

Ætli það sé samhengi þarna á milli? Hefði kanski lánafyrirgreiðsla Baugs gengið snurðulaust fyrir sig ef Tryggvi hefði ennþá verið innanbúðar þarna? Er þar komin raunveruleg ástæða fyrir starfi hans hjá Landsbankanum?
En bíddu við, á Jón Ásgeir ekki eitthvað annað Rauðsólar fyrirtæki á einni enn kennitölunni þannig að hann geti keypt rekstur Baugs og skilið eftir skuldirnar? Getur þjóðin ekki bætt dálitlu meiru á sig svo hann geti haldið áfram sandkastalaleiknum?
mbl.is Baugur í greiðslustöðvun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvers vegna?

Ótrúlegt hversu margir Bretar innan ESB vilja að við göngum þar inn. NB það eru sérstaklega "ríkari þjóðirnar" svo og þær þjóðir sem stunda fiskveiðar sem eru áfjáðar í að við göngum þar inn. Ekki er mikið verið að gera fyrir "fátækari þjóðirnar" innan ESB á sama tíma. Hvað er það sem ESB áhangendur ekki sjá þarna?
mbl.is „Ísland er ekkert bananalýðveldi“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þvílíkur munur !

Þvílíkur munur sem er á stjórnmálamönnum hér og erlendis.  Eins mönnum í opinberum stöðum svo sem skrifstofustjórum og fleirum.  Hversu allt hefði gengið betur fyrir sig ef við hefðum fólk sem segði af sér ef einhverjir annmarkar væru á hæfni þeirra, nú eða jafnvel hættu við störf? 

Ætli þessi aðilar fái síðan  vel feita starfslokasamninga eins og tíðkast hér? nú eða þá margra mánaða biðlaun þrátt fyrir að vera á segjum þingmannalaunum?

Varla


mbl.is Daschle dregur sig í hlé
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Verðið tengt usa dollar og álverði,

en hvað er þá verðið í dag miðað við álverð og bandaríkjadollar?    Er það kanski bara leyndó? samningurinn settur í skúffu ... lok lok og læs, ekki segja neinum verð?

Fyrri ríkisstjórn samþykkti í lok síðasta árs að draga úr niðurgreiðslu á dreifingu raforku til garðyrkjubænda um 30%.  Hvað eru þeir að greiða fyrir raforkuna í dag?

Forvitnilegt væri að fá svör við þessu, eða á endalaust að laumupúkast með verð á raforku til álvera og annarra?


mbl.is Orkusölusamningur staðfestur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ja hérna Sigurður,

og það trúa þér náttúrulega allir, heldurðu það ekki?  Gætir haft rétt fyrir þér, en fyrst fyrrverandi stjórn var með sömu áhyggjur þá er ekki ólíklegt að Tony Presley sé að segja satt.  Að minnsta kosti miðað við allar yfirlýsingar og peningastreymi fré þér til útlanda held ég að ég trúi ekki orði sem þú segir og er hissa ef einhver trúir einhverju sem þú segir, svona yfir höfuð.

En hvað um það, amk virðist vera ástæða til að ætla að Tony segi rétt frá núna, Kaupþingsmenn blautir bak við eyrun, ekki með viðskiptavit, jú virðist nokkuð rétt.  Nema að það teljist viðskiptavit að eingöngu ná í fullt fullt af peningum fyrir sjálfa sig og nokkra útvalda og skilja aðra eftir með sárt enni?


mbl.is Vísar ásökunum Shearers á bug
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Góður !

Frábært hjá þér Ögmundur og rétt hugsun á bakvið ! Það er nógu hræðilegt fyrir fólk að lenda í veikindum og atvinnumissi þó það þurfi ekki að greiða að leggjast inná spítala.
mbl.is Hvorki valdboð né komugjöld
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband