9.2.2009 | 20:18
Ekki von á góðu fylgi hjá Sjálfstæðisflokknum
í komandi kosningum ef þessi froðusnakkur verður áfram í framboði til þings. Drengstaulinn veit ekkert hvað hann er að tala um þrátt fyrir að hann hafi setið á þingi. Eina sem hann hugsar um er að geta keypt léttvín og bjór í næstu matvöruverslun en það er það sem hann hefur lagt orku sína í á þingi frá því hann komst inn.
Þessi drengstauli virðist ekki einu sinni vita að Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur hafa verið í ríkisstjórn síðustu áratugi og bera þess vegna mesta ábyrgð á því hvernig komið er.
Ég held að hann sé einn af þeim sem eigi að fara sömu leið og Árnarnir tveir þe.dýralæknirinn og "steina- og járnlistamaðurinn".
Nema að sjálfsögðu að Sjálfstæðisflokkurinn vilji hljóta mun meiri afhroð en fyrirsjáanleg eru í næstu kosningum!
Þýðir ekki að klína sök á Sjálfstæðisflokkinn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Ég er hræddur um að sjálfstæðisflokkurinn og Framsókn fá mikið fylgi því þeim stendur ekkert annað til boða.
Offari, 9.2.2009 kl. 20:30
Siggi sprút, verður á þingi svo lengi sem þjóðin kys hann, hann er á launum hjá okkur til að koma á þessari þörfu afengislöggjöf eða hitt þó heldur. Hann hefur ekkert lært þó hann hafi verið tekinn fullur á bíl á Hellisheiðinni
SS (IP-tala skráð) 9.2.2009 kl. 20:33
Sammála ykkur öllum, látum hann tala og tala þá kanski losnum við endanlega við hann!
Sigurbjörg, 9.2.2009 kl. 21:14
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.