Var einhver að tala um skítlegt eðli?

"Fagur er bankastjórastóllinn og ég mun hvergi fara!"  Svona gætu hljómað ein af lokaorðum í starfi mannsins sem heldur að hann sé kóngur Íslands.  Og svona í alvöru, hélt einhver að hann Dabbi litli myndi segja af sér?  Hann telur sjálfan sig einráðann og  þess vegna að hann geti hagað sér eins og hann vill.  Að sjálfsögðu reynir hann að gera lítið úr Jóhönnu og hann getur í leiðinni.  Hann sýnir með þessu hversu hrokafullur hann er og hans lítilsvirðingu gagnvart stjórnvöldum.  Hann sýnir sitt rétta eðli núna.  Var ekki einhver að tala um skítlegt eðli?

Ekki er Eiríkur skárri, hann sýnir að hann er með sama eðli. 


mbl.is Davíð segir ekki af sér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna

Ótrúlegt, finnst þer ekki. Kveðja Anna

Anna , 8.2.2009 kl. 18:46

2 Smámynd: Rakel Sigurgeirsdóttir

Er ekki alveg tilbúin til að taka undir að Eiríkur þjáist af því sama og Davíð. En af einhverju þjáist hann það er alveg víst!

Rakel Sigurgeirsdóttir, 8.2.2009 kl. 20:14

3 Smámynd: Sigurbjörg

Kanski þjáist Eiríkur bara að meðvirkni

Sigurbjörg, 8.2.2009 kl. 20:18

4 Smámynd: Rakel Sigurgeirsdóttir

Reiknaði einmitt með því að það lægi í augum uppi hvað ég væri að vísa til

Rakel Sigurgeirsdóttir, 9.2.2009 kl. 00:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband