22.1.2009 | 19:24
Hvað er að gerast með hæstarétt?
Er ekki Hæstiréttur að segja með þessu að kynlífsathafnir tengdar börnum séu í lagi svo framarlega sem gerandinn hafi sérstakan áhuga á BDSM ?
Einhvern veginn get ég ekki trúað því að samkvæmt barnaverndarlögum sé í lagi að áhugafólk á BDSM flengi börn og beri síðan oliu á rass þeirra.
Maðurinn var líka ákærður fyrir líkamsárás með því að hafa ítrekað slegið móðurina á beran rassinn með beltisól. Hann var sýknaður þar sem sýnt þótti að athæfið hefði verið hluti kynlífsathafna þeirra, en ákærði kveðst hafa sérstakan huga á flengingum og bindileikjum (BDSM) í kynlífi, eins og segir í héraðsdómi.
Er hæstiréttur ekki með þessu að gefa grænt ljós á kynlífathafnir gagnvart börnum svo fremi sem gerandinn sé haldinn kvalalosta.
Mátti flengja drengi kærustu sinnar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Mér finnst þetta mál bara viðbjóður. Ef það hefðu verið stúlkubörn sem áttu þarna í hlut hefði maðurinn fengið dóm.
Flengingar eru ofbeldi. Falleg skilaboðin sem litlu drengirnir fá út í framtíðina eftir þennan dóm. Það er semsagt allt í lagi að berja börn.
Margrét St Hafsteinsdóttir, 23.1.2009 kl. 01:14
Sammála, þetta er viðbjóður. Flengingar eru ofbeldi og í þessu tilfelli kynferðislegt ofbeldi v. BDSM áráttu gerandans.
Sigurbjörg, 23.1.2009 kl. 08:25
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.