17.1.2009 | 20:14
Ja hérna Guðni
Hrunið eingöngu á vakt Sjálfstæðisflokksins, ertu ekki að djóka? Samfylkingin var með þeim á vakt síðustu mánuðina. En það sem meira er Framsóknarflokkurinn með Sjálfstæðisflokknum á mestallan "heiðurinn" af þessu hruni.
Eða er það bara ímyndun að Framsóknarflokkurinn hafi verið með Sjálfstæðisflokknum í ríkisstjórn á síðustu áratugum? Bara þeir tveir flokkar?
Þessi blekking lýsir því best að ekkert hefur breyst innan þessa flokks að hann skuli heiðra mann sem á stóran hluta í þessu hruni.
Guðni er annað dæmi um "EKKI BENDA Á MIG" einkennið sem ég minnist á í dag.
Guðni Ágústsson heiðraður | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
já þeir hafa ekki tekið hausinn uðð úr sandbingnum blessaðir
Hólmdís Hjartardóttir, 17.1.2009 kl. 22:02
hausinn upp úr.....átti þetta að vera
Hólmdís Hjartardóttir, 17.1.2009 kl. 22:02
Guðni lenti í mótvindi í eigin flokki. Hann reiddist. Það er mannlegt að reiðast.
Hann skrifaði bréf til Alþingis um að hann væri hættur. Það hefur ekki gerst áður.
Menn hafa venjulega stunið því upp í pontu, ellegar dáið. Þetta er nýr stíll.
Hann fór til Kanarí um háannatímann á Alþingi.
Það er líka nýr stíll. Það hefði verið skiljanlegt ef hann hefði farið heim að
Brúnastöðum um há sauðburður.
Hann sneri aftur eins og Gunnar á Hlíðarenda. En ólíkt Gunnari þá lifði hann
þetta af. Og er meðal vor. Hann er hylltur af þingheimi. Það er gott.
Framsóknarmenn bera enga ábyrgð á því hvernig komið er fyrir þjóðinni.
Það segir Valgerður. Hún er væn kona og drengur góður.
Þorsteinn H. Gunnarsson (IP-tala skráð) 17.1.2009 kl. 22:18
Og að sjálfsögðu trúum við öllu sem hún segir
Sigurbjörg, 17.1.2009 kl. 22:28
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.