19.12.2008 | 10:21
Nú koma í ljós heilindi stjórnmálamanna.
Það verður gaman og fróðlegt að skoða hvernig atkvæði þingmanna og ráðherra falla. Hvort þeir samþykkja annað en kattarþvott !
Segja eftirlaunafrumvarp kattarþvott | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Sammála, þessu þarf þjóðin að fylgjast með. Og gera það sjálf, því miður því fjölmiðlar hafa brugðist okkur.
Og muna svo við næstu kosningar.
Arnór Valdimarsson (IP-tala skráð) 19.12.2008 kl. 14:26
Og við þurfum að muna það að fleiri fjölmiðlar eru ritskoðaðir en DV. Það vita allir hvernig RUV hefur verið ritskoðað í gegnum árin og er enn ... ekki satt?
Sigurbjörg, 19.12.2008 kl. 20:50
Sammála þessu þarf sko að fylgjast með og fylgja eftir hvernig þetta sama fólk emjar nú yfir því að það sé svo lítill tími til umræðu á því að afnema þessi ólög.
En þetta sama fólk var á sínum tíma svo áfjáð í þessi ólög, að það samþykkti strax án umræðu nótt eina í desember, enda sáu þau hag sinn vænkast all snarlega, um leið og þau samþykktu lög á hækkun eftirlauna hins "almenna" lífeyrisþega og öryrkja .
Það er kominn tími til að vekja almennilega athygli á því hvernig þeir sem á þingi eru starfa og hugsa.
Ellen Björnsdóttir, 20.12.2008 kl. 13:13
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.