13.12.2008 | 17:44
Ótrúlegar tillögur !
Fyrir nokkru bárust fréttir af niðurskurði í utanríkisþjónustunni. Smá niðurskurður en ekkert af viti. Ugglaust þarf að hugsa vel um vini og vandamenn sem búið er að ráða í sendiráðin sem mörg hver mættu missa sín. En nei, ekki að spara meira þar, spörum í heilbrigðisþjónustunni !
Er síðan næsta skref að vera með sjúkraþjónustu svipaða og í bandaríkunum? Þessir tekjuhæstu þeir verði þeir einu sem hafi efni á að leita til slíkra stofnana og eftir verður smá aðstaða fyrir alla hina sem fínt er að setja bara á enn lengri biðlista en eru í dag?
Er þetta kanski ein af leiðum þeirra til að losna við kostnaðarsama þjóðfélagsþegna, ellilífeyrisþega, öryrkja og langveikt fólk ?
Heilbrigðisstofnanir í vanda | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.