Færsluflokkur: Bloggar

Sagði Fme engum frá ?

Hérna er verið að tala um ágúst mánuð.  Sagði Fme engum frá ? Ekki fjármálaráðherra? Ekki viðskiptaráðherra ?  Ekki forsætisráðherra ?  Ekki neinum í ríkisstjórn ? Ekki seðlabankastjóra ?  Er ekki alltaf verið að tala um septembermánuð sem þann tímapunkt sem þeir fá einhverjar upplýsingar ??????


mbl.is Vildu stöðva Icesave
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

hver var hagnaðurinn?

Hér áður fyrrr var talað um kennitöluflakk og leiðir til að koma í veg fyrir það.  Er þetta ekki sami hluturinn, bara töluvert stærri í sniðum?  Hvers vegna er aldrei neitt raunhæft gert til að koma í veg fyrir svona ? 

Gaman væri að vita hvort ekki sé um töluverðan hagnað að ræða í þessu tilfelli ?  En ætli bankaleynd komi ekki í veg fyrir að Landsbankinn segi frá söluverðinu.....


mbl.is Next og Noa Noa aftur í eigu sömu hjóna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki bara rannsókn á þeirra störfum...

Að sjálfsögðu á að fá óháða menn til að skoða allt aftur fyrir gamla Glitni.  EF niðurstöðum ber ekki saman á að sjálfsögðu að að rannsaka þau verkefni sem KPMG sinnti fyrir skilanefnd gamla Glitnis, með tilliti til hagsmunaárekstra.
mbl.is KPMG vill rannsókn á störfum fyrir Glitni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eru þetta ekki of mikil höft og of háir skattar ?

Ef við værum stærra land og ef allir væru með fleiri rásir en ríkissjónvarpið væri þetta frumvarp skiljanlegt.  En það eru ekki allir landsmenn sem ná nema RÚV og hvað með rétt auglýsenda til að ná til þeirra?  Það hafa ekki allir efni á stöð 2 og ekki allir sem nenna að horfa á allar þessar auglýsingar sem eru á skjá 1.  Ég tek það fram að ég er ekkert hrifin af auglýsingum, stend yfirleitt upp á meðan þær eru.  Enn eitt, fyrir mjög margar fjölskyldur er þetta mjög mikil hækkun á RÚV afnotagjöldum.  Ansi margir skólakrakkar búa hjá foreldrum og fyrir fjölskyldu með 3 börn á skólaaldri (þe eldri en 16 ára) þýðir þetta tvöföldun á afnotagjaldi.  Í einu tilfelli er þetta réttlætanlegur nefskattur, en það er fyrir þá sem búa einir.  Ég held að þetta komi til með að fækka töluvert áskrifendum af stöð 2 td.  
mbl.is Frumvarp: miklar takmarkanir á auglýsingar RÚV
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvaða bull er í gangi?

Er þetta ekki lygi????????

Hvaða íslenskir kaupsýslumenn eru þarna að verki?? eða vinir þeirra? bara til að fela slóðir?


mbl.is Kaupþing í Lúxemborg selt á 1 evru
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Svo lengi lærir .....

Kanski kennir þetta okkur að ekki er allt fengið með álverksmiðjum út um allt Ísland.  Hvernig væri að fara að huxa um aðrar leiðir núna ? Hvað með hátækni iðnað og fleiri góð tækifæri sem hafa verið þögguð niður að álversdýrkendum?
mbl.is Álið lækkar með olíunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

smá týra :)

Ljós í svartnætti síðustu 2 mánaða, alltaf gott ef eitthvað er hægt að gera vel :)
mbl.is Samningur starfsmanna járnblendisins samþykktur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Samantekin ráð?

Það er mikið að í þessu landi.  Fme finnur ekkert athugavert við að fyrirtæki hennar standi ekki við skuldbindingar sínar.  Það á varla eftir að finna eitthvað athugavert við önnur viðskipti.  Það er ótrúlegt að ef ekki verða fengnir utanaðkomandi aðilar til að fara yfir þessi og önnur viðskipti undanfarinna ára.  Ég sagði nú í gríni meira en alvöru í síðustu viku í góðra vina hópi að allar aðgerðir sem væru nú í gangi væru til að beina augum frá þessum aðilum sem áttu allt, skelltu í gjaldþrot eftir að koma undan auðævum.  Þeir myndu ná meiri tökum hér og erlendis á þessum brunaútsölum sem væru þegar farnar í gang og myndu hagnast ótæpilega á því.  Hvað eru alþingismenn og ríkisstjórn svo og yfirmenn bankamála að hugsa????????? og á virkilega að láta endurskoðunarfyrirtæki tengd þessum mönnum að fara yfir bókhald þeirra? Hvers konar vitleysa er þetta?  Er ekki nú þegar farið að bera á að menn séu komnir inn aftur???????? Hvað kemur það fé?????  

Eru það samantekin ráð og þá hverra að beina athygli almennings eingöngu að seðlabankastjórn og ríkisstjórn meðan þeir komi öllu undan rannsókn með að eignast allt?


mbl.is FME aðhefst ekki vegna viðskipta Birnu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

skrítið ....

Engin gögn á íslensku til? hvað með löggilda skjalaþýðendur? treysta íslensk stjórnvöld þeim ekki til að vinna sína vinnu?
mbl.is Engin gögn um skuldbindingar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað er verið að gera?

Ég veit reyndar ekki hvað hægt er að gera, en er einhver að vinna í því að fá gögn frá þessum banka áður en hann verður seldur? Er verið að reyna það ? Við megum ekki gleyma okkur í að ráðast eingöngu á ríkisstjórnin, fjármálaeftirlitið og seðlabankann og þeirra mistök, eða er kanski verið að beina allri athygli þeim? Er verið að gera allt til þess að fá upplýsingar um reikninga útrásarmannanna frá þessum banka? Er ekki hægt að koma í veg fyrir að þeir moki yfir skítinn með því að kaupa bankann?
mbl.is Ekki ákvörðun um Kaupþing
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband