Hvað gerir Björgvin nú ?

Þarna er bara verið með útúrsnúninga, þeir ætla sér líklega ekki að láta upplýsingarnar með góðu.  Nú reynir á viðskiptaráðherra sem þarf að standa við orð sín gagnvart Íslendingum ! Vertu áfram í vinnunni fyrir okkur Björgvin !
mbl.is Fjármálaeftirlitið í Lúxemborg vill veita upplýsingar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Loksins!

Mál til komið að viðskiptaráðherra mætti í vinnu !Cool
mbl.is Kaupþing í Lúx ekki selt nema gögnin fáist
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eru þetta viðbrögð við kvörtunum til aðalstöðva ?

Hve margir ætli hafi kvartað við aðalstöðvar KPMG vegna fyrirtækisins hér? Ætli þetta séu hræðsluviðbrögð og þeir séu að reyna að koma í veg fyrir að fjöldakvartanir berist?
ekki vitlaust að kíkja á eftirfarandi síður:

http://kpmg.com/Global/ContactUs/Pages/InternationalHotline.aspx

http://vesteinngauti.blog.is


mbl.is KPMG óskar eftir lausn frá verkefni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

þetta gat hann

Það var mikið að hann fór að gera eitthvað, þarna hefur honum líklega tekist að skrifa eitt bréf með hjálp aðstoðarmanna, En að öllu gamni slepptu, þetta er spor í rétta átt og tími til kominn !
mbl.is Stjórnvöld í Lúxemborg veiti upplýsingar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kanski jólagjafir?

Gaman að vita að einhverjir geta leyft sér þann munað að kaupa nýja bíla núna. Shocking

Kanski kreppan komi ekki niður á svo mörgum eftir allt saman. Er búin að heyra að margir hafi gert reyfarakaup og hafa í leiðinni náð að forða þeim sem eru um og við að missa vinnuna frá því að missa bílinn sinn með að kaupa hann fyrir slikk !!! Þvílík gæska. 


mbl.is 93,2% færri nýskráningar í byrjun desember
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ótrúlegt

Bara að fara yfir ákveðin verk? Þetta er hreinn skrípaleikur. Það þarf að fara yfir öll gögn og síðan að bera saman hvort um frávik sé að ræða. Það er vinna sem kostar, en þess virði, bæði fyrir bankann og KPMG ef þeir hafa yfir höfuð nokkurn áhuga á því að halda því trausti sem þeir hafa áunnið sér sem virt endurskoðendafyrirtæki.
mbl.is Farið yfir störf KPMG fyrir skilanefnd Glitnis
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

að vita og vita ekki

Vissi hann þetta allan tímann og svaraði eins og hann hélt að væri hentugast? Eða ar hann fljótastur að gríða til lyginnar eins og virðist vera ráðherra háttur í dag?

Fróðlegt að vita hvort hann man hvaða endurskoðandi var ákærður í sambandi við Baugsmálið og hjá hvaða fyrirtæki sá endurskoðandi var ....


mbl.is Björgvin vissi af rannsókn KPMG
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Virðist vera satt sem sagt er ....

að það er gott að búa í Kópavogi Cool
mbl.is Kópavogur: gert ráð fyrir hallalausum rekstri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

hmmmmmm...

Hvernig væri að senda ríkisstjórnina til Copacabana í frí ásamt seðlabankastjóra, seðlabankastjórn, fjármálaeftirlitinu og nokkrum bankastjórum og kanski stjórnum þeirra? ...  Eins að senda með þeim útrásarmennina, kennitöluflakkarana og verkalýðsleiðtogana, amk gunnar pál ...?

Nei svona bara í gamni .... annars er víst ljótt að hugsa svona

 


mbl.is 9000 horfnir á tveimur árum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvar er ráðherra bankamála ?

Hvað er ráðherra bankamála að hugsa?   Að láta út úr sér hluti eins og þessa, hver á að trúa þessu?  Er hann ekki í vinnunni?  Hann talar ekki við seðlabankastjóra í næstum ár, hvers konar vinnubrögð eru þetta?  Hvar er hann?  Einhvers staðar þar sem ekki er hægt að ná í hann, eða er hann bara í eigin hugarheimi?  Hvar annars staðar í heiminum myndi það viðgangast að bankamálaráðherra talaði ekki við seðlabankastjóra ?  Hvað annars staðar í heiminum myndi það viðgangast að bankamálaráðherra vissi ekkert um framgang mála í bönkum sem ríkið hefði yfirtekið?  Hversu lengi þurfum við að horfa uppá mistök ráðherra og ekki bara bankamálaráðherra heldur þeirra allra sofandahátt?  Hversu lengi þurfum við að bíða þar til við fáum hæft fólk í stöðu seðlabankastjóra, seðlabankastjórn og fjármálaeftirlit?  Hversu lengi þar til við fáum nýja ótengda bankastjóra í ríkisbankana í stað þeirra sem hafa ekki einusinni yfirsýn yfir ársreikninga síns eigin fyrirtækis?  Hversu lengi ????????????????

Og halda ráðamenn að við trúum einhverju af þessu rugli að þeir viti ekki neitt fyrr en allt kemst upp ?????


mbl.is Björgvin vissi ekki um KPMG fyrr en í gær
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband