8.1.2009 | 23:08
Gjörsamlega siðlausir !
Þetta er of ótrúlegt til að vera satt! Þeir sömu og eiga MJÖG stóra sök á bankahruninu á Íslandi krefjast næstum 190 milljarða v. gamla Kaupþings ! Er ekki í lagi með fólk??? Hvernig verður með restina af þessum útrásarguttum ætla þeir síðan allir að reyna að blóðmjólka þjóðina eina ferðina enn ? Verða þeir ekki ánægðir fyrr en þeir sjá okkur sauðsvartan almúgann eignalausan og og án þjóðernis?
Hvernig er hægt að vera svona gjörsamlega siðblindur?
Máltækið gamla "Margur verður af aurum api" er ansi vægt til orða tekið miðað við þessa menn.
Held að "Skepnuskapurinn ríður ekki við einteyming" sé betra.
Krafa Kjalars 190 milljörðar króna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.