11.12.2008 | 22:44
Göngun skrefi lengra !!!!!
Til að hjálpa ríkisstjórninni til að halda uppi atvinnu hér á landi væri réttast að launþegahreyfingin endurskoðaði samningana á eftirfarandi hátt:
1. Frysta laun launþega næstu 10 ár og þeir launþegar sem eru yfir lágmarkslaunum lækki í þau.
1a. Undantekningar: Verkalýðsleiðtogar,ráðherrar,þingmenn,borgar-bæja- og sveitastjórnarmenn og bankastjórar.
2. Taka af allan óþarfa eins og orlof og aukafrídaga ss 1.mai,17.júní og jóla-og nýarsdag.
3. Lækka framlag atvinnurekenda í lífeyrissjóð því við höfum jú svo góða sjóði.
4. Hækka framlag launþega í lífeyrissjóð, svona bara til vara.
5. Undantekningar: Halda áfram sömu reglum og eru í gildi fyrir þá sem eru upptaldir í lið 1a.
6. Standa með ríkisstjórninni í hækkunum á sköttum, bæði beinum og óbeinum.
7. Lækka eftirlaun aldraðra svo og laun öryrkja.
8. Standa fast á að viðhalda verðtryggingu lána.
9. Verða viðbúin að taka húseignir á næstu mánuðum þegar launþegar hætta að geta borgað.
10. Leigja húseignir sem fást á næstunni aftur til fólksins fyrir lágmark 70% af launataxta.
Endurskoðun samninga frestað | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.