Hvort ætli komi til með að skila sér betur?

Það verður fróðlegt að sjá hvort virkar betur stýrivaxtahækkun Seðlabanka Íslands upp í 18% eða stýrivaxtalækkun Seðlabanka Bandaríkjanna niður í 0-0,25% .  Seðlabanki Bandaríkjanna hefur meiri reynslu að kreppu en við, þeir voru jú með kauphallarbrask fyrir stóru kreppuna á síðustu öld og hafa lent í smá krísum síðan, þó ekki neitt í líkingu við það sem á sér stað nú.

Hvernig ætli þeir hefðu tekið á verðtryggingu húsnæðislána þarna í henni Ameríku?  Fyrir utan það að þeim hefði ekki dottið sú firra í hug. 

Hugsið ykkur ef stýrivextir hérna væru þeir sömu? 

Það eru nú bara draumórar jafnvel að láta sig dreyma um 5-7% stýrivexti.  Og við sem erum með verðtryggð lán !


mbl.is Vextir 0-0,25% í Bandaríkjunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband