Ekki von á góðu fylgi hjá Sjálfstæðisflokknum

í komandi kosningum ef þessi froðusnakkur verður áfram í framboði til þings.  Drengstaulinn veit ekkert hvað hann er að tala um þrátt fyrir að hann hafi setið á þingi.  Eina sem hann hugsar um er að geta keypt léttvín og bjór í næstu matvöruverslun en það er það sem hann hefur lagt orku sína í á þingi frá því hann komst inn. 

Þessi drengstauli virðist ekki einu sinni vita að Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur hafa verið í ríkisstjórn síðustu áratugi og bera þess vegna mesta ábyrgð á því hvernig komið er. 

Ég held að hann sé einn af þeim sem eigi að fara sömu leið og Árnarnir tveir þe.dýralæknirinn og "steina- og járnlistamaðurinn". 

Nema að sjálfsögðu að Sjálfstæðisflokkurinn vilji hljóta mun meiri afhroð en fyrirsjáanleg eru í næstu kosningum!


mbl.is Þýðir ekki að klína sök á Sjálfstæðisflokkinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Offari

Ég er hræddur um að sjálfstæðisflokkurinn og Framsókn fá mikið fylgi því þeim stendur ekkert annað til boða.

Offari, 9.2.2009 kl. 20:30

2 identicon

Siggi sprút, verður á þingi svo lengi sem þjóðin kys hann, hann er á launum hjá okkur til að koma á þessari þörfu afengislöggjöf eða hitt þó heldur. Hann hefur ekkert lært þó hann hafi verið tekinn fullur á bíl  á Hellisheiðinni

SS (IP-tala skráð) 9.2.2009 kl. 20:33

3 Smámynd: Sigurbjörg

Sammála ykkur öllum, látum hann tala og tala þá kanski losnum við endanlega við hann!

Sigurbjörg, 9.2.2009 kl. 21:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband