Færsluflokkur: Bloggar

Ætlast hann til að við einhver trúi því ?

Og hvers vegna átti Kaupþing að lána til þess að verja félög tengd honum falli? Voru þau félög líka eigendur í Kaupþingi?
Var búið að segja Tchenguiz að íslenskur almenningur væri svo auðtrúa að það mætti bara segja þeim það sem hentaði hverju sinni ?
Keypti hann hlutabréf í bankanum til að geta gengið að lánsfé þar vísu? Var það kanski hluti af samningi varðandi kaupin á hlutafénu?
mbl.is Engin sérstök fyrirgreiðsla til mín, segir Tchenguiz
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bretta upp ermarnar og klára áður en þing verður rofið!

Er ekki tími til kominn? Vilja ekki allir klára áður en þing verður rofið og fólk fer í nokkurra vikna kosningaslag ?
mbl.is Stóru málin bíða í þinginu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mjög áríðandi að fá nýja stjórn í VR

Það þarf að breyta heldur betur til og VR félagar þurfa að nota kosningarétt sinn til að breyta þessu. Eftirfarandi frétt úr DV segir sitt þó aðeins sé þar um brot af spillingunni sem núverandi stjórn undir forystu Gunnars Páls lætur viðgangast!

Í DV í dag segir: "Þorgeir Eyjólfsson, forstjóri Lífeyrissjóðs verslunarmanna, hefur þegið þrjátíu milljónir á ári í laun fyrir störf sín en auk þess keyrir hann um á tíu milljóna króna Cadillac Escalade í boði sjóðsins.

Á sama tíma og forstjórinn keyrir um á bandarískum lúxusbíl af dýrustu gerð þá tapar sjóðurinn þrjátíu og tveimur milljörðum vegna fjárfestinga sinna."


Jú mikið rétt,

örfáir aðilar gerðu þetta með vitund ríkisstjórnar framsóknarflokks og sjálfsstæðisflokks. Með vitund Fjármálaeftirlitsins og Seðlabanka. Þessir aðilar sem stjórnuðu þá eru farnir frá loksins og vonum að aldrei aftur komist svo spillt stjórn og aðilar að aftur.
Þögn er sama og samþykki segir máltækið og þeir hafa ekki axlað ábyrgð ennþá !
mbl.is Wall Street á túndrunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

VR félagar þurfa að drífa í því að kjósa !

Við viljum öll óspillta forystu sem gefur ekki einkavinum eftir skuldbindingar á kostnað félagsins. Ég hvet alla VR félaga til að nýta sér sinn rétt og kjósa og það sem fyrst !
Reyndar fékk ég lykilorð sent í pósti fyrst í gær, þannig að trúlega hefur eitthvað gerst hjá póstinum eða í útsendingu seðlanna.
mbl.is 10 prósent hafa kosið hjá VR
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Góð spurning !

Kanski veit framsóknarflokkurinn leið til þess?  Kanski vilja kvótakóngar framsóknarflokksins borga þetta sem uppbót fyrir þann kvóta sem þeim var færður á silfurfati?

 


mbl.is Hvar á að taka þessa peninga?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jæja, betri hugsun hjá Jóhönnu

en erfðaprinsi framsóknarmafíunnar. Ég held að þar sem framsóknarfólk er svo vant að hafa mikil fjárráð í kosningaslagi að þess vegna vilji sá litli rjúfa þing strax. Eða hvað á maður að halda með þegar hann heimtar það. Hann vill kanski halda áfram að eyðileggja fyrir Samfylkingu og VG með því, í stað þess að klára sem mest eins og Jóhanna segir hér. Hann er kanski að halda áfram vinnu flokksbróður síns sem tafði fyrir Seðlabanka frumvarpinu. Ætlar framsókn sér í eina sæng með sjálfstæðisflokknum aftur, eru þeir að stefna á það? Ef svo er, til hvers?
mbl.is Hægt að halda áfram þingstörfum eftir þingrof
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Og á þessum tímum langt frí !

Þing rofið 12 mars, alþingiskosningar 25.april, einhverjir dagar í að mynda nýja stjórn. Amk 7 vikur frí frá þingstörfum. Væri ekki ráð að nýta meira af tímanum þarna í eitthvað annað en kosningabaráttu? Er þetta ekki meira starf að koma þjóðinni út úr þessu en að vinna smá forvarnarstarf næsu viku eða svo?
Sigmundur erðaprins framsóknar virðist ekki halda að svo sé. Amk er þetta hans vilji.
mbl.is Vill rjúfa þing 12. mars
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eigum við síðan von á að sjá ákærur?

Eru þetta "starfslok" samkvæmt pöntunum Finns eða er þetta raunverulegur flótti? Hefur þetta eitthvað með peningafærslur um og fyrir bankahrunið að gera? Það virðist alla vega eitthvað mikið gruggugt við þetta ......
mbl.is Fjöldaflótti frá Kaupþingi?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jæja, þá er útséð um það

Ingibjörg axlar ekki enn ábyrgð og ætlar sér líklega aldrei að gera það. Það eitt að hún sé í framboði og ætli sér að vera áfram formaður Samfylkingar veikir stöðu Samfylkingarinnar.
Jóhanna í 1.sæti er ljós punktur. Það gæti aflað þeim atkvæða því hún nýtur trausts sem er meira en Ingibjörg gerir. Spurning hvort það nái að koma í veg fyrir að kjósendur hætti við að kjósa Samfylkinguna.
Það eru fleiri flokkar Sjálfstæðisflokkur sem þarf að skipta út forystunni. Leitt að Ingibjörg sjái það ekki.
Nú er það spurningin, ætlar Samfylkingarfólk virkilega að kjósa hana í prófkjörinu?


mbl.is 20 bjóða sig fram fyrir Samfylkingu í Reykjavík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband